Vinnueftirlitið: Vinnuvélaréttindi
Hvernig endurnýja ég vinnuvélaréttindin mín?
Vinnuvélaréttindi gilda til sjötugs. Hægt er að endurnýja réttindin á þriggja ára fresti eftir það.
Kranaréttindi þarf að endurnýja á 10 ára fresti frá fyrstu útgáfu. Þegar verið er að endurnýja þau þarf að skila inn læknisvottorði og staðfestingu á gildu skírteini.
Óskað er eftir endurnýjun vinnuvélaréttinda á Island.is Þegar verið er að endurnýja útrunnin réttindi t.d vegna aldurs ber að skila inn læknisvottorði (almennt vottorð). Skírteinið er gefið út og sent í pósti á handhafa skírteinisins. Einnig er hægt að sækja stafrænt skírteini.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?