Fara beint í efnið

Ungt fólk sem er að feta sín fyrstu skref á vinnumarkaði þarf að þekkja hvað einkennir góðan vinnustað þar sem stuðlað er að öryggi, góðri heilsu og vellíðan starfsfólks. Með því að gera ungmenni betur í stakk búin til að gæta að eigin vellíðan og öryggi í starfi stuðlum við að aukinni sjálfbærni á vinnumarkaði.

Svo að það megi verða hefur verið útbúið samnorrænt kennsluefni sem ætlað er ungmennum á efsta stigi grunnskólans. Einnig er unnt að nýta efnið á framhaldsskólastigi.

Efnið er aðgengilegt á íslensku og öðrum norðurlandatungumálum.

Kennsluefni um vinnuumhverfi fyrir ungmenni

Markmið

Markmiðið með kennsluefninu er að ungt fólk þekki hvað einkennir góðan vinnustað þar sem stuðlað er að öryggi, góðri heilsu og vellíðan starfsfólks. Áhersla er lögð á gildi forvarna en því miður eru vinnuslys algengust hjá ungu fólki.  

Mikilvægt er að stuðla að öryggisvitund einstaklinga sem eru að feta sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Það styður þá í að eiga þátt í góðri vinnustaðamenningu, þar á meðal öryggismenningu og er þá bæði átt við líkamlegt og sálfélagslegt öryggi.

Sameiginleg ábyrgð

Þó atvinnurekandi beri ábyrgð á því að skapa ungmennum, sem og öðrum, öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi í samræmi við lög og reglur skiptir afar miklu máli að ungmenni hafi sjálf þekkingu á áhættuþáttum í vinnuumhverfinu sem gætu ógnað öryggi þeirra og heilsu til skemmri eða lengri tíma. 

Um kennsluefnið

Kennsluefninu er skipt upp í sex kennslustundir en hverri kennslustund fylgja myndbönd, kennsluglærur, kennsluleiðbeiningar og verkefni á öllum norðurlandamálunum. Efnið er ætlað til kennslu í efstu bekkjum grunnskóla en er öllum opið og getur jafnframt nýst á framhaldsskólastigi.   

Norrænn verkefnahópur vann kennsluefnið en þar áttu sæti framhaldsskólakennari, náms- og starfsráðgjafi, sérfræðingur á sviði vinnuumhverfis og sérfræðingar í upplýsingamiðlun og greiningum. Kennsluefnið hefur verið prófað með nemendum í efstu bekkjum grunnskólans við Þekkingarakademíuna í Sundsvall í Svíþjóð. 

Vinnueftirlitið hvetur skóla, forráðamenn og öll sem koma að fræðslu ungmenna til að kynna sér efnið og ræða við þau um mikilvægi vinnuverndar. Þannig má leggja grunn að því að öll komi heil heim, starfsævina á enda.  

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439