Fara beint í efnið

Ísland.is

Fyrir Grindavík

Upplýsingar fyrir íbúa Grindavíkur

header

Þórkatla tekur við 200 fasteignum í Grindavík í maí

24. maí 2024

Fulltrúar Þórkötlu fasteignafélags eru nú í óða önn að taka við eignum í Grindavík af seljendum þeirra.

Grindavik altjonsbætur

Fulltrúar Þórkötlu fasteignafélags eru nú í óða önn að taka við eignum í Grindavík af seljendum þeirra. Afhendingin fer fram á sérstökum skilafundum og mun Þórkatla taka á móti um 30 eignum í þessari viku og áætlað er að taka við 170 til viðbótar í næstu viku.

„Stór hluti eignanna er í góðu ástandi. Það er töluvert um nýleg vel byggð hús í Grindavík sem sloppið hafa vel frá hamförunum hingað til. Svo eru vissulega hús inn á milli sem þarfnast lagfæringa og einhver hús sem eru mjög illa farin og eiga sér litla framtíð. Við munum þurfa að vinna þétt með Náttúruhamfaratryggingu Íslands við að skoða tryggingarstöðu Þórkötlu vegna þeirra eigna sem eru illa farnar,“ segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu.

Umsjón og eftirlit eigna í skoðun

Þórkatla er nú að vinna með aðilum á svæðinu að því að skipuleggja eftirlit og umsjón með eignunum. Almennt viðhald verður í lágmarki á meðan óvissa ríkir um yfirvofandi jarðhræringar. Félagið mun á þeim tíma leggja áherslu á að fyrirbyggja frekari skemmdir.

„Þó flestir séu áhugasamir um að viðhalda byggð í bænum þá hefur ástandið tekið á fólk og því finnst gott að vera að klára þetta ferli. Það eru svo náttúruöflin sem stjórna framhaldinu en það er alltaf markmið okkar að fá sem flesta Grindvíkinga til að kaupa eignir sína til baka síðar meir. Það er mikilvægur hluti af því að styðja við framþróun Grindavíkur til framtíðar,“ segir Örn Viðar.

Umsóknir orðnar fleiri en áttahundrað

Umsóknir frá Grindvíkingum um sölu á fasteignum til Fasteignafélagsins Þórkötlu eru nú orðnar 812. Félagið hefur þegar samþykkt kaup á tæplega 700 eignum eða 86% þeirra sem sótt hafa um. Þinglýstir kaupsamningar eru að nálgast 600 en félagið hefur boðið 640 aðilum eða tæp 80% umsækjenda kaupsamning til undirritunar. Seljendur hafa fengið um 28,5 milljarða greidda í kaupsamningsgreiðslu og yfirtekin lán frá lánastofnunum nema 14,5 milljörðum króna.

Vinna við fráviksumsóknir sem bárust í mars, svo sem vegna skilyrðis um lögheimili, húsa sem eru í byggingu og altjónshúsa er enn í gangi og er vinna við fráviksumsóknir sem bárust í apríl hafin.

Eins og áður hefur komið fram er vinna við útfærslu á lausn fyrir búseturéttarhafa í gangi. Málinu miðar áfram, en ekki er ljóst hvenær hægt verður að kynna lausn málsins.

Umfang verkefnisins stefnir í allt að 75 milljarða króna

Útlit er fyrir að heildarfjárfesting Þórkötlu í húsnæði í Grindavík verði allt að 75 milljarður í heildina eða um 14 milljörðum króna meiri en áætlað var við setningu laganna um úrræðið. Aukinn kostnaður skýrist að mestu af hækkun brunabótamats á eignum í bænum.