Fara beint í efnið

Ísland.is

Fyrir Grindavík

Upplýsingar fyrir íbúa Grindavíkur

header

Byrja aftur taka við eignum í Grindavík á mánudag

31. maí 2024

Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið, í samráði við Almannavarnir og Lögreglustjórann á Suðurnesjum, að halda áfram móttöku fasteigna í Grindavík strax á mánudag.

grindavik

Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið, í samráði við Almannavarnir og Lögreglustjórann á Suðurnesjum, að halda áfram móttöku fasteigna í Grindavík strax á mánudag. Ákvörðunin er þó með þeim fyrirvara að aðstæður í bænum og við eldstöðvarnar breytist ekki til hins verra.

Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu segir ákvörðunina tekna í fullu samráði við viðbragðsaðila. „Við gerum þetta þó ekki síst vegna þess að við finnum að margir seljendur eru uggandi gagnvart frekari frestun á afhendingu eignanna. Seinkun getur leitt til tafa á uppgjöri afsalsgreiðslna og margir eru búnir að gera ráð fyrir þessum greiðslum í sínu bókhaldi.“

Móttaka eignanna fer fram á sérstökum skilafundi og munu allt að sex starfsmenn á vegum Þórkötlu annast þetta verkefni næstu vikurnar. Félagið mun senda út tölvupóst til þeirra sem áttu bókaða afhendingu í þessari og næstu viku, með slóð þar sem fólk getur bókað tíma fyrir afhendingu. Félagið hefur einnig tekið vel í beiðnir fólks sem óskað hefur eftir seinkun á afhendingu eigna af ýmsum ástæðum.

Aðkoma að Grindavík er sem stendur eingöngu um Suðustrandarveg og fólk er hvatt til að kynna sér opnar aðkomuleiðir að bænum. Þá er bæði starfsmönnum Þórkötlu og almenningi uppálagt að fylgja ávallt fyrirmælum Almannavarna.