Útgáfa flugstarfaskírteina á Íslandi
Samgöngustofa ber ábyrgð á útgáfu flugstarfaskírteina, samþykkir nám varðandi þau og hefur eftirlit með samþykktum- og yfirlýstum þjálfunarfyrirtækjum (ATO/DTO) sem og þjálfun hjá flugfélögum.
Öll flugstarfaskírteini sem gefin eru út á Íslandi eru í samræmi við staðla Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO Annex 1). Að auki eru eftirfarandi skírteini háð samevrópskum reglum sem innleiddar eru á grundvelli EES samningsins:
Skírteini flugumferðarstjóra
Skírteini flugvélatækna
Skírteini flugmanna á flugvélar, þyrlur, svifflugur, létt loftför og vænghnitur (e. powered lift aircraft).
Öll Part-FCL skírteini útgefin/endurútgefin af Samgöngustofu eftir 5. desember 2018 innihalda athugasemdina „This licence is automatically validated as per the ICAO attachment to this licence“. Viðhengið, sem vísað er til í athugasemdinni, er aðgengilegt á heimasíðu EASA . Þeir flugliðar sem starfrækja loftför sem skráð eru í öðru EASA ríki geta prentað viðhengið út og framvísað í hlaðskoðunum sé þess krafist.
Lög og reglur
Þjónustuaðili
Samgöngustofa