Úrræði í greiðsluerfiðleikum
Allir geta lent í erfiðleikum með fjármál sín og óvænt atvik geta komið upp sem hafa áhrif á fjárhag fólks og afkomu. Það eru ýmis úrræði fyrir hendi í samfélaginu til að takast á við vandann, en brýnast er þó að gera eitthvað strax í málunum.
Umboðsmaður skuldara veitir fólki sem á í greiðsluerfiðleikum endurgjaldslausa ráðgjöf. Ráðgjöfin felst í að aðstoða fólk við að fá yfirsýn yfir fjárhagsstöðuna eins og hún er í dag og leita leiða til úrbóta.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (Íbúðalánasjóður) býður upp á nokkur úrræði vegna greiðsluerfiðleika. Helstu leiðir eru samningar, skuldbreyting, frestun á greiðslum og lenging lánstíma.
Meðlagsgreiðandi getur leitað úrræða hjá Sýslumanni Norðurlands vestra vegna vanskila.
Bankar og aðrar lánastofnanir og fjármálafyrirtæki, veita ráðgjöf um leiðir til að leysa úr greiðsluerfiðleikum.
Hægt er að sækja um réttaraðstoð til nauðasamninganefndar til að standa straum af kostnaði við að koma á nauðasamningi.
Umsókn um réttaraðstoð til að leita nauðasamninga
Vert að skoða
Lög og reglugerðir
Þjónustuaðili
Umboðsmaður skuldara