Umsókn um viðurkenningu sem farmverndaraðili
Markmið farmverndar er að hindra að hættuleg efni, vopn eða tæki komist inn á haftasvæði eða um borð í flutningsför og tryggja verndun farms frá hleðslustað að geymslu- og haftasvæði. Eftirfarandi geta sótt um að verða farmverndaraðilar, vegna farmverndar við hleðslu og flutning farms:
Aðilar í útflutningsverslun, framleiðslu eða viðgerðaþjónustu í atvinnuskyni og flytja út vörur með reglubundnum hætti.
Flutningsaðilar og flutningsmiðlurar.
Aðilar sem annast útflutning, frágang, pökkun og hleðslu vöru.
Umsóknarferlið
Fyrirspurnir varðandi farmvernd sendist á netfangið farmvernd@skatturinn.is
Leiðbeiningar um útfyllingu umsóknar
Nánar
Lög um siglingavernd númer 50/2004
Reglur um farmvernd númer 141/2010
Þjónustuaðili
Skatturinn