Panta farmverndarinnsigli
Til að panta farmverndarinnsigli fyrir sitt fyrirtæki, verður fyrirtækið að vera samþykkt sem viðurkenndur farmverndaraðili hjá Skattinum og forráðamaður kominn með aðgang, notendanafn og lykilorð að heimsvæði fyrirtækisins á umsjónarvef farmverndar.
Pöntunarferlið og afhending innsigla
Forráðamaður skráir sig inn á umsjónarvef farmverndar.
Velur Innsigli > Panta innsigli.
Velur tegund innsigla (Boltainnsigli eða Vírinnsigli).
Tilgreinir fjölda farmverndarinnsigla, sem óskast keypt. Það eru 250 stykki í pakka.
Velja afhendingarmáta fyrir innsiglin þegar þau eru tilbúin. Hægt er að velja hvort þau séu:
send í póstkröfu.
sótt til Skattsins (Katrínartúni 6, Reykjavík). Sýna þarf gild persónuskilríki og skriflegt umboð frá forráðamanni fyrirtækis (til dæmis: útprentaða skjámynd af pöntuninni og skrifa þar umboðið). Ekki þarf að staðgreiða sóttar pantanir. Reikningur verður sendur á fyrirtækið eftir afhendingu innsiglanna.
Notkun farmverndarinnsigla
Nánar
Lög um siglingavernd númer 50/2004.
Reglur um farmvernd númer 141/2010.
Þjónustuaðili
Skatturinn
