Umsókn um rekstrarleyfi fyrir geymslusvæði fyrir ótollafgreiddan varning
Sækja þarf um leyfi til starfrækslu geymslusvæða fyrir ótollafgreiddar vörur. Leyfi er eingöngu veitt lögaðilum. Einstaklingar geta ekki sótt um.
Umsóknarferill
Umsókn skal vera skrifleg og innihalda eftirfarandi upplýsingar:
Nafn umsækjanda ásamt kennitölum og lögheimilum stjórnarmanna og daglegs stjórnanda
Tegund geymslusvæðis sem sótt er um leyfi fyrir. Sjá nánar um tegundir og reglur sem gilda um geymslur.
Yfirlýsing frá löglegum fulltrúa, stjórnarformanni, framkvæmdastjóra eða umboðsmanni um að öll skilyrði sem gilda um starfsemina hafi verið eða verði uppfyllt
Fylgigögn með umsókn
Greinargerð með ítarlegri lýsingu á fyrirhugaðri starfsemi og skipulagi hennar, bókhaldi, tölvubúnaði fyrir birgðabókhald, vörslu gagna, innra eftirliti og aðstöðu fyrir tolleftirlit
Teikningar af húsnæði og lóð sem ætluð eru til starfseminnar
Búsforræðisvottorð og sakavottorð stjórnarmanna og daglegs stjórnanda
Starfsleyfi til tollmiðlunar – ef tollmiðlari sækir um leyfi fyrir afgreiðslugeymslu
Við umsókn um tollvörugeymslu, tollfrjálsa forðageymslu og frísvæði þarf að leggja fram viðbótarupplýsingar um umfang fyrirhugaðrar starfsemi. Þar á meðal mat á tollverðmæti þeirra vara sem gert er ráð fyrir að séu geymdar á hverjum tíma, til að hægt sé að reikna út trygginguna sem setja þarf.
Trygging til ríkissjóðs
Leyfishafar tollvörugeymslu, tollfrjálsrar forðageymslu, umflutningsgeymslu og frísvæðis skulu setja tryggingu til ríkissjóðs sem nemur 3% af tollverðmæti þeirra vara sem gert er ráð fyrir að séu geymdar á hverjum tíma.
Lágmarkstrygging er:
50.000.000 kr. fyrir tollvörugeymslur, umflutningsgeymslur og frísvæði
Lægra lágmark gildir fyrir tollfrjálsar forðageymslur
Óheimilt er að hefja rekstur fyrr en trygging eða tryggingargögn hafa verið afhent Tollstjóra.
Skilyrði
Eftirfarandi skilyrði þurfa að vera uppfyllt eftir geymslutegund:
Umsækjandi er lögaðili
Stjórnarmenn hafa óflekkað mannorð og vera fjárráða
Stjórnun, innra eftirlit, bókhald og varsla gagna eru með traustum hætti
Húsnæði og aðstaða uppfyllir kröfur um tolleftirlit
Leyfishafi setur tryggingu (gildir um tollvörugeymslur, frísvæði og umflutningsgeymslur)
Stjórnarmenn leyfishafa bera persónulega ábyrgð á að innra eftirlitskerfi sé traust og skilvirkt og veiti nægilega vissu um að farið sé að lögum og reglum.
Skyldur leyfishafa eftir veitingu leyfis
Birgðabókhald skal haldið yfir allar vörur á geymslusvæðinu:
Afgreiðslugeymslur skrá samkvæmt farmskrám.
Tollvörugeymslur skrá allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til tollafgreiðslu.
Geymslusvæðiskóði skal alltaf tilgreindur í farmskrá við farmskrárskil til Tollstjóra, án hans er móttöku farmskrár hafnað.
Flutningur ótollafgreiddrar vöru milli viðurkenndra geymslusvæða þarf að tilkynna Tollstjóra og fá heimild fyrir.
Tollstjóri getur hvenær sem er gert vörutalningu á geymslusvæðunum.
Þjónustuaðili
Skatturinn