Þú getur sótt um lækkun eða niðurfellingu vörugjalds af sumum ökutækjum. Sækja þarf um lækkun eða niðurfellingu áður en ökutæki er nýskráð, eða í beinum tengslum við nýskráningu.
Tollmiðlari aðstoðar við umsóknarferlið.
Ökutæki
Sækja má um fyrir eftirfarandi ökutæki:
Sérsmíðaðar bifreiðar til akstursíþrótta
Bifreiðar fyrir starfsemi björgunarsveita
Sérútbúnar bifreiðar fyrir fatlað fólk
Sérútbúin ökutæki fyrir fólksflutninga
Frekari upplýsingar um hvaða ökutæki uppfylla skilyrði má finna í reglugerð um vörugjald af ökutækjum (331/2000).
Skilyrði um notkun
Niðurfellingu vörugjalda fylgja skilyrði um notkun ökutækisins í tiltekinn tíma. Ef breytingar verða á notkun á tímabilinu þarf að endurgreiða vörugjöldin að hluta.
Eignarleigufyrirtæki
Ef skráður eigandi er eignarleigufyrirtæki þarf það einnig að undirrita yfirlýsingu um að það sé meðvitað um skilyrðin og lögveðið. Hyggist fyrirtækið nýta sér niðurfellingu vörugjalds þarf það að staðfesta að það muni greiða hluta gjaldanna ef ökutækið er tekið til annarra nota en upphaflega var ákveðið.
Breyting á notkun eða sala ökutækis
Áður en þú selur ökutækið eða breytir notkun þess þarft þú að gera upp ógreitt vörugjald. Upphæðin sem þú greiðir fer eftir því hve lengi ökutækið hefur verið í þeirri notkun sem lægra gjald var veitt fyrir.
Ekki er hægt að skrá eigendaskipti fyrr en eftirstöðvar vörugjalds hefur verið gert upp.
Þjónustuaðili
Skatturinn