Hver getur átt rétt á skaðabótum?
Þeir foreldrar sem fengu greitt úr fæðingarorlofssjóði á tímabilinu september 2022 til og með júní 2025.
Foreldrar sem störfuðu skemur en 4 mánuði á innlendum vinnumarkaði á 12 mánaða viðmiðunartímabilinu við útreikning á meðaltali heildarlauna.
Þeir foreldrar sem störfuðu í öðru EES ríki á viðmiðunartímabilinu.
Hvað er viðmiðunartímabil?
Við útreikning fæðingarorlofs er miðað við 12 mánaða viðmiðunartímabil á vinnumarkaði. Lesa meira hér.
Af hverju á foreldri sem fékk greitt fyrir eða eftir tímabilið september 2022 til júní 2025 ekki rétt á skaðabótum?
Lögum um fæðingarorlof og foreldraorlof var breytt 1. júlí 2025 þannig að heimilt er að horfa til starfa foreldris fram að fæðingarmánuði barns við útreikning á meðaltali heildarlauna hafi það starfað skemur en 4 mánuði á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabili en hefur starfað að hluta eða öllu leyti í öðru EES ríki á sama tímabili.
Samkvæmt lögum nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda fyrnast almennar- og skaðabótakröfur á fjórum árum.
Hver tekur ákvörðun um rétt til skaðabóta?
Vinnumálastofnun tekur á móti umsóknum. Þegar stofnunin hefur aflað tilskilinna gagna verða upplýsingarnar sendar til Ríkislögmanns sem tekur ákvörðun um rétt til greiðslu skaðabóta fyrir hönd íslenska ríkisins.
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun