Tollafgreiðsla til bráðabirgða fyrir vörur sem krefjast flýtimeðferðar
Með bráðabirgðatollaafgreiðslu eru vörur afgreiddar úr tolli þrátt fyrir að ekki séu öll nauðsynleg gögn til staðar. Það gerir innflytjanda kleift að sækja vöruna áður en öll skjöl hafa verið skráð eða full tollafgreiðsla hefur farið fram.
Þú getur sótt um bráðabirgðatollafgreiðslu til Tollstjóra ef þú:
þarft að fá vöruna afhenta fljótt en hefur ekki öll skjöl til að ljúka fullri tollafgreiðslu
getur sýnt fram á að þú hafir ekki fengið þau gögn sem leggja ber fram í tolli eða þau séu ekki fullnægjandi
Í neyðartilvikum, til dæmis við innflutning á lifandi dýrum, ferskum fiski og grænmeti, hráefni til iðnaðarframleiðslu eða vélavarahlutum í atvinnutæki, geta tollyfirvöld heimilað afhendingu vöru án hefðbundinnar tollafgreiðslu. Slík neyðarafgreiðsla á hins vegar ekki við um almenna verslunarvöru.
Skilyrði
Eftirfarandi skilyrði þurfa öll að vera uppfyllt:
Sendingarnúmer
Upplýsingar um sendingarnúmer (eða þann hluta þess sem kunnur er) skulu liggja fyrir. Ef um flugfarm er að ræða þarf jafnframt að tilgreina númer flugfarmbréfs.
Verðmæti tilgreint
Verðmæti vöru skal koma fram á sölureikningi, eða kynnt með öðrum fullnægjandi hætti.
Vörutegund og vörumagn
Skýrar upplýsingar um hvers konar vara er í sendingu og hversu mikið er af henni.
Innflutningsheimildir
Heimildir þeirra stjórnvalda sem þurfa að samþykkja innflutning á tilteknum vörutegundum þurfa að ligga fyrir, til dæmis lifandi dýr, lyf og aðrar leyfisskyldur vörur. Sjá nánar um takmarkanir á innflutningi.
Greiðsla og trygging
Til að nýta bráðabirgðatollaafgreiðslu þarftu að leggja fram tryggingu fyrir þeim gjöldum sem gætu verið í gildi.
Tryggingin er útreiknuð aðflutningsgjöld að viðbættum 25%, þó aldrei lægri en 7.500 kr.
Frestur til fullnaðartollafgreiðslu
Frestur til fullnaðartollafgreiðslu er almennt ekki lengri en 20 dagar frá komu vöru til landsins en má framlengja eftir beiðni innflytjanda ef sérstaklega stendur á.
Að fresti liðnum falla aðflutningsgjöld í eindaga og dráttarvextir reiknast frá þeim tíma.
Hafi skil ekki verið gerð innan 30 daga frá afhendingu vöru er Tollstjóra heimilt að krefja farmflytjanda um öll áfallin gjöld, auk dráttarvaxta.
Þjónustuaðili
Skatturinn