Sveinsbréf í löggiltri iðngrein
Sýslumaðurinn á Suðurlandi sér um útgáfu sveinsbréfa til þeirra sem ná sveinsprófi og uppfylla skilyrði skv. lögum um handiðnað. Rétt til að kenna sig í starfsheiti sínu við löggilta iðngrein hafa þeir einir er hafa sveinsbréf eða meistarabréf í iðngreininni.
Athugið að sveinsbréf veitir handhafa þess ekki rétt til að reka sjálfstæða atvinnustarfsemi í viðkomandi iðngrein eða taka nemendur til náms í greininni. Í þeim tilvikum þarf viðkomandi að hafa fengið útgefið meistarabréf sér til handa.
Listi yfir löggiltar iðngreinar.
Skilyrði
Uppfylla þarf eftirfarandi skilyrði til að geta fengið útgefið sveinsbréf:
Hafa lokið sveinsprófi í löggiltu iðngreininni.
Fullnægir að öðru leyti skilyrðum þeim, sem sett eru í lög um handiðnað.
Umsóknarferli
Sjá nánar um sveinspráf:
Ferli
Þegar sýslumaður fær tilkynningu frá viðeigandi fagfélagi er sveinsbréfið gefið út með sjálfvirkum hætti og birtist á mínum síðumumsækjanda á island.is
Sveinsbréfið er einungis gefið út stafrænt.
Endurútgáfa sveinsbréfa
Heimilt er að endurútgefa sveinsbréf í löggiltri iðngrein sem breytt hefur verið um heiti á og skal þá notast við heiti iðngreinarinnar samkvæmt gildandi reglugerð. Glati einstaklingur sveinsbréfi sínu þá er það almennt ekki endurútgefið heldur er unnt að fá staðfestingu frá sýslumanni um að viðkomandi hafi fengið útgefið sveinsbréf í löggiltri iðngrein á tiltekinni dagsetningu.
Fyrirspurn vegna sveinsbréfa
Hér er hægt að senda fyrirspurn til sýslumanns til að fá upplýsingar vegna sveinsbréfa
Kærufrestur
Heimilt er að kæra ákvörðun sýslumanns til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins innan þriggja mánaða frá móttöku, samkvæmt lögum um handiðnað og stjórnsýslulaga.
Lög og reglugerðir
Lög nr. 42/1978 um handiðnað
Reglugerð nr. 940/1999 um löggiltar iðngreinar
Lög nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs
Reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Suðurlandi