Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skattfrádráttur vegna kostnaðar við rannsóknar- eða þróunarverkefni

Réttur til skattfrádráttar vegna kostnaðar við rannsóknar- eða þróunarverkefni í þeim tilgangi að efla rannsóknir og þróun og bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja.

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Opnar 20. ágúst 2026

Umsóknartímabil

20.08.2026 - 01.10.2026

Styrkjaflokkun

Nýsköpun, Rannsóknir

Tegund

Skattfrádráttur

Skattfrádráttur vegna kostnaðar við rannsóknar- eða þróunarverkefni

Lokað fyrir umsóknir / Opnar 20. ágúst 2026

Nýsköpunarfyrirtæki sem er eigandi að rannsóknar- og/eða þróunarverkefnum sem hlotið hafa staðfestingu Rannís á rétt á sérstökum frádrætti frá álögðum tekjuskatti. Frádrátturinn nemur 35% af útlögðum, styrkhæfum kostnaði í tilviki lítilla og meðalstórra fyrirtækja en 25% í tilviki stórra fyrirtækja, enda sé um að ræða frádráttarbæran rekstrarkostnað.

Hverjir geta sótt um?

Öll fyrirtæki sem eru eigendur rannsóknar- eða þróunarverkefna sem þau bera sjálf fjárhagslega áhættu af.

Háskólar og stofnanir teljast ekki fyrirtæki í skilningi laganna.. Fyrirtæki sem eiga í fjárhagsvanda og fyrirtæki sem íslenska ríkið á útistandandi endurgreiðslukröfu á vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar falla einnig utan gildissviðs laga nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.

Hvernig er sótt um?

Sótt er um í rafrænu umsóknakerfi Rannís - Mínar síður.

Sækja skal um staðfestingu vegna hvers rannsóknar- eða þróunarverkefnis fyrir sig. Með umsókn skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu ásamt verk- og kostnaðaráætlun og viðskiptaáætlun fyrir afurð(ir) verkefnisins.

Nauðsynlegt er að skila eftirfarandi umsóknargögnum með umsóknum:

  • Sjálfsmati með staðfestingu endurskoðanda fyrirtækisins á stærðaflokkun fyrirtækisins, ef um er að ræða lítið eða meðalstórt fyrirtæki sem er hluti af samstæðu, heyrir undir móðurfélag eða á eitt eða fleiri dótturfélög.

  • Samstarfssamningi ef um samstarfsverkefni er að ræða, ásamt upplýsingum um alla þátttakendur og áætlaða hlutdeild hvers og eins.

  • Einnig er æskilegt eftir aðstæðum (t.d. flækjustigi) að skila inn myndum til skýringar á þeirri afurð sem verkefninu er ætlað á skila.

Svör við spurningum

Starfsmenn sjóðsins veita frekari upplýsingar og aðstoð alla virka daga frá 9:00–15:00 í síma 515 5800 og með tölvupósti.

Starfsmenn sjóðsins:

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands