Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Frestur var til 04. apríl 2025

Umsóknartímabil

20.03.2025 - 04.04.2025

Styrkjaflokkun

Menning og listir, Innlent

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Verkefnastyrkur Barnamenningarsjóðs

Styrkir fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna. Allir sem koma að barnamenningu geta sótt um .

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Frestur var til 04. apríl 2025

Umsóknartímabil

20.03.2025 - 04.04.2025

Styrkjaflokkun

Menning og listir, Innlent

Tegund

Fjármögnun

Verkefnastyrkur Barnamenningarsjóðs

Lokað fyrir umsóknir / Frestur var til 04. apríl 2025

  • Fjölbreytt verkefni og starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.

  • Sérstakt vægi hafa verkefni sem auk ofangreindra þátta stuðla einnig að lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka að öðru leyti mið af inntaki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

  • Einnig verður horft til verkefna sem efnt er til í samstarfi aðila, svo sem menningarstofnana, skóla, listafólks og félagasamtaka. Sérstaklega er hvatt til þess að samstarfsverkefni séu unnin í samstarfi ólíkra aðila, t.d. að stofnanir leiti samstarfs við grasrót skapandi fólks fremur en við aðrar stofnanir.

  • Ekkert er því til fyrirstöðu að verkefni taki yfir fleiri en eitt almanaksár.

  • Við úthlutun er almennt lögð áhersla á nýbreytni.

Hvað er ekki styrkt?

  • Ekki eru veittir styrkir til kjarnastarfsemi eða reglubundins rekstrar stofnana eða samtaka.

  • Tækjakaup eða uppbygging aðstöðu, s.s. húsnæðis, eru ekki styrkt.

  • Stakir ferðastyrkir eru ekki veittir.

  • Verkefni sem ljóst þykir að eigi frekar heima í verkefnasjóðum einstakra listgreina eða launasjóðum listamanna þar sem Barnamenningarsjóður er tímabundið átak til að efla barnamenningu og leysir ekki aðra sjóði undan þeirri ábyrgð að styðja við verkefni af vettvangi barnamenningar.

Hverjir geta sótt um?

Listamenn, stofnanir, félagasamtök og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt.

Hvernig er sótt um?

Umsóknum er skilað gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís, sjá leiðbeiningar. Aðeins er tekið við umsóknum og fylgiskjölum gegnum umsóknarkerfið.

  • Í umsóknareyðublaðinu skal gera greinargóða lýsingu á aðstandendum verksins, verkinu sjálfu og kostnaðaráætlun fyrir verkið (sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan). Ef um einstakling er að ræða þá fylgi upplýsingar um starfsferil, faglegan og listrænan bakgrunn viðkomandi.

  • Í verkáætlun skal gera grein fyrir öllum þáttum verkefnisins, til dæmis æfingum, viðburðahaldi, eða hverju því sem verkefnið samanstendur af. Í tímaáætlun á að setja upp tímaás hvenær verkhlutar verða framkvæmdir.

  • Aðeins er tekið við umsóknum og fylgiskjölum rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís (sjá leiðbeiningar).

  • Umsóknir og fylgigögn sem berast eftir að umsóknarfrestur er liðinn eru ógildar og ekki teknar til umfjöllunar í sjóðnum.

  • Sjá nánar um mat umsókna hér.

Nánari leiðbeiningar um umsóknarkerfi Rannís og afgreiðslu umsókna er að finna á upplýsingasíðu sjóðsins.

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands