Skipan stjórnar og/eða prókúruhafa sjóðs eða sjálfseignastofnunar
Stjórn sjálfseignastofnunar skal tilkynna til sjóðaskrár sýslumanns hverjir skipi stjórn og/eða séu prókúruhafar sjálfseignastofnunar hverju sinni. Stjórn skal ávallt skipuð eða tilnefnd í samræmi við ákvæði gildandi skipulagsskrár. Kennitölur og netföng stjórnarmanna og prókúruhafa skulu fyllt út.
Samkvæmt ákvæðum 2. gr. a. laga nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá með síðari breytingum, ber stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og skipuðum fjárvörsluaðila (prókúruhafa) trú- og lífsskoðunarfélaga, að uppfylla eftirtalin skilyrði:
Vera lögráða.
Hafa forræði á búi sínu.
Hafa ekki á síðustu þremur árum hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur fyrir verknað sem brýtur gegn almennum hegningarlögum, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. eða lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Áður en til skráningar breyttrar stjórnar eða prókúruhafa getur komið þarf embættið að fá sent vottorð um að nýr stjórnarmaður og prókúruhafi hafi forræði á búi sínu. Nálgast má vottorðið á island.is hér.
Þá þarf embættið að kalla eftir staðfestingu sakaskrár ríkisins á að ekki hafi fallið dómur sem fer í bága við ofangreind skilyrði.
Tilkynning um stjórn og prókúruhafa skal sent í netfangið sjodir@syslumenn.is ásamt afriti af viðeigandi fundargerð.
Sýslumaður annast skráningu stjórnar og prókúruhafa í málakerfum embættisins og tilkynnir fyrirtækjaskrá Skattsins um skipan þeirra.
Sé skráningu nýrrar stjórnar eða prókúruhafa hafnað, eða geri sýslumaður athugasemdir við framkomna tilkynningu, skal hlutaðeigandi aðilum veittur kostur á að bæta úr því sem ábótavant þykir.
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum