Fyrirtæki og félög þurfa að skila ársreikningi til opinberrar birtingar fyrir 31. ágúst.
Ársreikningur byggir á upplýsingum um fjárhag í lok reikningsárs.
Félög og fyrirtæki sem þurfa að skila ársreikningi
einkahlutafélög
samlagshlutafélög
samvinnufélög
samvinnusambönd
sparisjóðir
skráð útibú erlendra félaga
sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur
Áður en þú skilar
Aðalfundur félags hefur verið haldinn.
Ársreikningur var samþykktur á aðalfundi.
Skila þarf ársreikningi áður en mánuður líður frá aðalfundinum.
Almennur frestur til að skila ársreikningi til opinberrar birtingar er 31. ágúst eða eigi síðar en mánuði eftir að hann er samþykktur á aðalfundi.
Þetta gildir um öll skilaskyld félög með hefðbundið reikningsár, hvort sem þau eru í rekstri eða ekki.
Veflykill
Öllum ársreikningum er skilað rafrænt í gegnum þjónustuvef með aðalveflykli Skattsins eða skilalykli fagaðila. Það er ekki hægt að nota rafræn skilríki.
Hafi veflykill glatast er mögulegt að sækja um nýjan og fá hann sendan í:
netbanka, í rafrænum skjölum,
eða bréfpósti á skráð lögheimili félagsins.
Prókúruhafi, framkvæmdastjóri, formaður stjórnar eða stjórnarmaður í eins manns stjórn getur fengið veflykil afhentan á næstu starfsstöð Skattsins gegn framvísun persónuskilríkja.
Skil á ársreikningi: Skref fyrir skref
Tvær leiðir eru í boði:
Ársreikningi er skilað sem pdf-skjali
Örfélögum er heimilt að útbúa ársreikning sjálfkrafa með gögnum úr skattframtali.
Eftir innskráningu þarf að fara í gegnum og staðfesta eftirfarandi sex skref:
Yfirferð og staðfesting á reikningsárinu, tegund og fleira.
Staðfesta að endurskoðendur og skoðunarmenn séu rétt skráðir.
Staðfesta að upplýsingar um stjórn og framkvæmdastjórn séu réttar.
Athuga hvort hlutafé ársreiknings passi við skráð hlutafé í fyrirtækjaskrá.
Athuga hvort allir hluthafar séu rétt skráðir.
Hlaða upp ársreikningi og staðfesta skilin.
Kvittun fyrir móttöku
Að skilum loknum færðu móttökukvittun sem þú getur nálgast inni á þjónustuvef Skattsins.
Innihald ársreiknings
Ársreikningurinn á að vera settur upp sem ein heild.
Á forsíðu:
Nafn, kennitala og heimilisfang félagsins ásamt félagsformi.
Reikningsár og hvort um sé að ræða ársreikning eða samstæðureikning.
Innihald:
skýrsla stjórnar
áritun endurskoðanda eða staðfestingu skoðunarmanns
Örfélög geta útbúið fullgildan ársreikning beint upp úr gögnum skattframtalsins. Til að geta notað þessa þjónustu þurfa félög að uppfylla að minnsta kosti 2 af eftirfarandi 3 skilyrðum:
Eignir eru undir 20 milljónum króna.
Rekstrartekjur eru undir 40 milljónum króna.
Fjöldi ársverka má ekki fara yfir 3.
Tveggja ára reglan
Stærðarflokkun fyrirtækis breytist ekki við það eitt að eiga eitt óvenjulegt ár.
Ef velta örfélags fer skyndilega upp fyrir mörkin eitt árið, heldur það áfram að flokkast sem örfélag nema það verði líka yfir mörkunum á næsta ári þar á eftir.
Félag þarf að vera yfir mörkum tvö ár í röð svo stærðarflokkun þess breytist.
Hvenær skila þarf hefðbundnum ársreikningi
Þessi lausn er ekki fyrir félög sem falla undir skilgreiningu laga um:
endurskoðunarskyldu,
fjárfestingarfélög,
opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi,
eignarhaldsfélög,
einingar tengdar almannahagsmunum,
eða félögum sem víkja frá beitingu kostnaðarverðsreikningsskila.
Skil á ársreikningi
Eftir innskráningu ferð þú í gegnum eftirfarandi skref:
Staðfesta reikningsár, tegund og fleiri atriði. Í þessu skrefi er hakað við möguleikann á að nýta gögn úr skattframtali félagsins til að útbúa hnappsreikning.
Staðfesta að endurskoðendur eða skoðunarmenn séu rétt skráðir.
Staðfesta að stjórn og framkvæmdastjórn séu rétt skráð.
Staðfesta að hlutafé ársreiknings stemmi við skráð hlutafé í fyrirtækjaskrá.
Staðfesta að hluthafar séu rétt skráðir.
Hlaða inn ársreikningi og staðfesta skil.
Kvittun fyrir móttöku
Að skilum loknum færðu móttökukvittun sem hægt er að nálgast á þjónustuvef Skattsins.
Sektir
Ef ársreikningi er ekki skilað eða hann er ófullnægjandi, er lögð á stjórnvaldssekt að upphæð 600 þúsund krónur.
Stjórn og framkvæmdastjóri fyrirtækis bera ábyrgð á að ársreikningi sé skilað. Það gildir líka þó að endurskoðandi eða bókari skili ársreikningi fyrir hönd fyrirtækis.
Opinber birting
Að hafa ársreikninga opinbera þjónar þeim tilgangi að: