Fara beint í efnið

Borga sekt vegna vanskila á ársreikningi

Sekt að upphæð 600 þúsund krónur er lögð á skilaskyld félög ef ársreikningur, og samstæðureikningur ef við á, er ekki sendur inn á réttum tíma.

Tilkynning um sekt

  • Stjórnvaldsákvörðun þar sem félagi er tilkynnt um sekt vegna vanskila er send með bréfi sem birtist inni á „Mínum síðum“ félagsins á Ísland.is.

  • Greiðsluseðill er sendur í netbanka á kennitölu fyrirtækisins.

Sekt er lögð á jafnvel þó að:

  • Lítill eða enginn rekstur sé í félaginu.

  • Slæm fjárhagsstaða sé í félaginu.

  • Bókari, skoðunarmaður eða endurskoðandi hafi gert mistök.

  • Misskilningur eða samskiptaleysi hafi verið milli félagsins og bókara, skoðunarmanns eða endurskoðanda félagsins.

  • Skortur sé á þekkingu á gildandi lögum og reglum innan félagsins.

  • Einn af ábyrgðaraðilum fyrir skilum hafi glímt við veikindi.

Afsláttur

Ef fullnægjandi ársreikningur eða samstæðureikningur berst innan ákveðins tíma lækkar sektin. Talið er frá þeim degi sem ákvörðun er tekin um álagningu sektarinnar, það er, dagsetningu bréfs á Ísland.is.

Sekt lækkar um:

  • 90% ef skilað er innan 30 daga. Krafan lækkar ekki um leið og ársreikningi er skilað heldur í lok þessa 30 daga tímabils.

  • 60% ef skilað er innan 2 mánaða. Krafan lækkar ekki um leið og ársreikningi er skilað heldur í lok þessa 2 mánaða tímabils.

  • 40% ef skilað er innan 3 mánaða. Krafan lækkar ekki um leið og ársreikningi er skilað heldur í lok þessa 3 mánaða tímabils.

Kröfur eru lækkaðar samtímis í lok hvers tímabils. Ekki er hægt að lækka hverju einustu kröfu um leið og lagt er inn á hana eða hún greidd.

Ef þú greiðir strax með millifærslu hverfur krafan því ekki strax úr netbankanum, heldur í lok tímabilsins.

Ekki felldar niður

Sektir eru ekki felldar niður þó að ársreikningi eða samstæðureikningi sé skilað.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn