Fara beint í efnið

Sjúkradagpeningar - framfærsla í veikindum

Umsókn um sjúkradagpeninga

Tengdar bætur og greiðslur

Eftirfarandi bótaflokkar og úrræði tengjast sjúkradagpeningum á einn eða annan hátt

Sjúkradagpeningar úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga

Flest stéttarfélög eru með sjúkrasjóði og greiða félagsmönnum hlutfall af launum meðan á veikindum stendur. Þessar greiðslur fara samhliða sjúkradagpeningum frá Sjúkratryggingum.

Fjárhagsaðstoð félagsþjónustu sveitarfélaga

Ef ekki er réttur til greiðslna úr stéttarfélagi getur þú leitað til félagsþjónustunnar.

Félagsþjónustur vilja oft að umsækjendur hjá sér leiti réttar síns hjá Sjúkratryggingum. Þá gildir eftirfarandi:

  • Ekki er hægt að staðfesta hvort þú eigir rétt til sjúkradagpeninga nema berist umsókn og öll gögn.

  • Þó er hægt að staðfesta þegar umsókn hefur borist, sem stundum dugar þeim þar til umsókn er afgreidd.

Slysadagpeningar

Ef veikindi þín eru eftir slys á vinnustað, við heimili eða sem á að öðru leiti við um slysabætur almannatrygginga, er oftast betra fyrir þig að sækja um slysabætur, enda er um hærri bætur að ræða.

Endurhæfingarlífeyrir hjá Tryggingastofnun

Sjúkradagpeningar greiðast ekki samhliða endurhæfingu. Ef endurhæfing hefst hjá Tryggingastofnun munu greiðslur sjúkradagpeninga stöðvast sjálfkrafa.

Réttindi hjá tryggingafélögum

Athuga að stundum er réttur til greiðslna frá tryggingafélögum, t.d. vegna sjúkdómatryggingar. Allar greiðslur frá tryggingafélögum geta farið samhliða sjúkradagpeningum og því er best að leita einnig alls réttar hjá þeim.

Aðrar greiðslur hjá Tryggingastofnun

Ef um veikindi maka eða barns er að ræða er þér bent á að athuga rétt hjá Tryggingastofnun til maka- og umönnunarbóta eða foreldragreiðslna.

Lífeyrissjóðir

Sjúkradagpeningar mega greiðast samhliða örorku- og endurhæfingarlífeyri frá lífeyrissjóðum

Bætur til þolenda afbrota

Ríkissjóður getur greitt bætur vegna líkamsárása og miska. Ef óvinnufærni er eftir líkamsárás er því einnig hægt að hafa samband á netfangið botanefnd@syslumenn.is eftir upplýsingum.

Umsókn um sjúkradagpeninga

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar