Fara beint í efnið

Siglingatími

Siglingatími er viðurkenndur starfstími um borð í skipi. Starfstími reiknast frá þeim degi sem viðkomandi er skráður til starfa um borð í skipi til þess dags er hann er afskráður.

Umsækjanda skírteinis er skylt að færa sönnur á siglingatíma sem hann telur sig hafa að baki. Unnt er að færa sönnur á siglingatíma með staðfestingu úr lögskráningarkerfi sjómanna eða rétt útfylltri sjóferðabók.

Umsækjandi skírteinis sem kveðst hafa að baki siglingatíma á skipi sem ekki er skráð á Íslandi skal færa sönnur á þann siglingatíma með sjóferðabók eða á annan fullnægjandi hátt að mati Samgöngustofu. Ef vafi leikur á um réttmæti þeirrar sönnunar skal Samgöngustofa í því tilviki skera úr um siglingatíma.

*Eftir 1. nóvember 2010 er skylt að lögskrá á öll skip sem gerð eru út í atvinnuskyni, sbr. 2. gr. laga um lögskráningu sjómanna, nr. 35/2010: “Lög þessi gilda um áhafnir allra skráningarskyldra skipa á Íslandi sem gerð eru út í atvinnuskyni að undanskildum þeim sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá.”

Vottorð um siglingatíma.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa