Sala á bifreiðum í eigu opinberra aðila
Umsýsla við sölu á bifreiðum í eigu opinberra aðila er í höndum Króks ehf. Fjársýslan hafa gert tímabundin samning við fyrirtækið þess efnis. Lesa nánar um skilmála sölu bifreiða hjá Krók ehf.
Skref sem opinber aðili þarf að fara í gegnum við sölu á bifreiðum ríkisins.
1. Seljandi fyllir út beiðni um sölu bifreiðar.
Beiðni um sölu á bifreiðum/tæki
Í samræmi við reglugerð nr. 1160/2024 um bifreiðamál ríkisins og reglugerð nr. 892/2024 um ráðstöfun og öflun eigna ríkisins er óskað eftir sölu á bifreiðinni:
Beiðni um sölu á bifreið/tæki
Orkugjafi
Krókur ehf. og Fjársýslan hafa gert með sér tímabundið samkomulag um að Krókur annist sölu á bifreiðum, tækjum og öðrum búnaði, á heimasíðunni www.bilauppbod.is, fyrir stofnanir og fyrirtæki ríkisins. Þegar stofnun hyggst selja bifreið í hennar eigu þarf beiðni þessi að berast til Króks. Mikilvægt er að fylla eyðublaðið rétt og vel út. Krókur er til húsa í Vesturhrauni 5, 210 Garðabæ. Það er á ábyrgð seljanda að koma bifreiðinni til Króks. Ef sérstaklega stendur á, s.s. ef bifreið er ógangfær og kostnaður við flutning yrði hærri en líklegt söluverð er seljanda þó heimilt, í samráði við Krók, að sýna bifreiðina sjálfur. Sé bifreiðin/tækið ekki gangfært skal þess getið í 9. lið í 1. kafla hér framar. Seljandi staðfestir að bifreiðin/tækið er skráð á Íslandi og verður afhent hrein og gangfær með nægilegu bensíni til að hægt sé að prufukeyra henni og færa hana til. Aukalyklar og lyklar skulu afhentir Króki, merktir með fastanúmeri. Seljandi er í skilum með bifreiðagjöld og tryggingaiðgjöld. Verði eftirmálar af sölunni, t.d. vegna galla, mun seljandinn sjálfur annast samskipti við kaupanda.
Sjá gjaldskrá hér https://island.is/sala-a-bifreidum-i-eigu-opinberra-adila
2. Seljandi kemur bifreið eða tæki til Króks ehf. sem hefur uppboðsferlið á vefsvæði sínu.
Hægt er að fylgjast með uppboðum á vefsíðu Bílauppboðsins.
Krókur ehf. Vesturhrauni 5, 210 Garðabæ. Sími: 522 4610
3. Krókur ehf. sendir Fjársýslunni tilkynningu að söluferli sé hafið.
Ef bifreið eða tæk er ógangfær eða vegna staðsetningar að erfitt reynist að koma á uppboðsstað er hægt að senda greinagóða lýsingu á ástandi bifreiðar eða tækis ásamt myndum sem sýna umræddan búnað frá öllum hliðum að innan og utan. Seljandi ber ábyrgð að uppfylla kröfur Króks ehf. sem teknar eru fram í skilmálum Króks ehf.
Uppboðstími er um það bil eina vika.
4. Þegar kaup nást annast Krókur ehf. frágang og uppgjör.
Frágang afsals og eigendaskipti
Uppgjör til stofnunar
Senda Fjársýslunni yfirlit um sölu.
5. Ef lágmarksverði hefur ekki verið náð
Ef búið er að bjóða bifreiðina eða tækið upp tvisvar, mun Fjársýslan koma að ákvörðun um næstu skref.
Gjaldskrá Króks ehf.
Varningur | Verð í kr. án vsk |
---|---|
Uppboð og sala ökutækja, véla og tækja seld á 250.000- kr. eða meira. | 56.000 |
Uppboð og sala ökutækja, véla og tækja, seld á undir 150.000 kr. | 27.500 |
Uppboð notaðra muna | 20% af söluverði þó að hámarki kr. 45.000 |
Geymslugjald á sólarhring innanhúss. | 2.500 |
Þóknun ef greitt er með debetkorti. | Kr. 500 |
Þóknun ef greitt er með kreditkorti. | 2,8% |
Skilmálar og umboð
Ökutæki verða að vera skráð eign seljanda, veðbandalaus og bifreiðagjöld og þungaskattur að fullu greidd. Sama gildir um annað lausafé að það þarf að vera veðbandalaust.
Skilmálar sem seljandi þarf að staðfesta má finna á vefsíðu Króks.
Seljandi þarf að undirrita umboð til sölu sem veitir Króki ehf. fullt umboð til þess að undirrita fyrir hönd seljanda öll skjöl er varða eigendaskipti á ökutækinu, taka við söluandvirði og/eða afskráningu og úreldingu.
Afhending til söluaðila
Seljandi kemur bifreið eða tæki til Króks ehf. sem hefur uppboðsferlið. Krókur ehf. er til húsa að Vesturhrauni 5, 210 Garðabæ, sími 522 4610. Starfsmenn þar taka mynd af uppboðsmun og senda Ríkiskaupum tilkynningu um að söluferlið sé hafið.
Ef bifreiðar/tæki eru ógangfær eða vegna staðsetningar reynist erfitt að koma á uppboðsstað þarf að senda greinargóða lýsingu á ástandi bifreiðar/tækis og myndir sem sýna umræddan búnað frá öllum hliðum og að innan. Seljanda ber að uppfylla kröfur Króks ehf. hvað þetta varðar.
Á meðan á uppboði stendur eru ökutæki og annað lausafé almennt staðsett á starfsstöð Króks ehf. nema um annað sé sérstaklega samið við starfsmenn Króks ehf.
Almennir kaupendur sjá Kaup á bifreiðum hins opinbera
Þjónustuaðili
Fjársýslan (Innkaup)