Sérnámsstöður lækna – samræmt ráðningarferli
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður lækna innan þeirra greina lækninga þar sem viðurkennt sérnám fer fram á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri og samstarfsaðilum. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.
Samræmt ráðningarferli opið til og með 26. janúar 2026
Upphafsdagur ráðninga er á bilinu júní til ágúst 2026.
Móttökudagur sérnáms verður haldinn 17. september 2026 í Baulu á Landakoti og er skyldumæting. Sérnám í læknisfræði á Íslandi hefur þróast hratt á undanförnum árum. Nú er veitt sérnám í flestum grunngreinum lækninga á Íslandi í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið.
Sérnám fer að mestu leyti fram á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Aðrir samstarfsaðilar eru Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands og Reykjalundur. Ef samvinna hefur verið staðfest milli LSH og samstarfsaðila í viðkomandi sérgrein er gert ráð fyrir að sérnámslæknar vinni á báðum stöðum. Það sérnám sem hér er auglýst eru sérnámsleiðir viðkomandi greina á Íslandi sem samþykktar hafa verið af mats- og hæfnisnefnd í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnám samræmist viðurkenndri marklýsingu viðkomandi greinar og fylgir mats- og handleiðslukerfi þjálfaðra handleiðara.
Doktorsnám er mögulegt samhliða klínísku sérnámi. Ef fyrir liggur samþykkt rannsóknaráætlun fyrir doktorsnám getur umsækjandi sótt um slíka stöðu. Að lágmarki væri þá um 50% ráðningu við Landspítala að ræða eða eftir samkomulagi og klínískt sérnám lengt sem því nemur og í samræmi við reglugerð 856/2023. Taka skal óskir um slíkt sérstaklega fram í athugasemdum við umsókn og í kynningarbréfi. Samþykkt rannsóknaráætlun doktorsnáms skal fylgja með umsókn.
Sjá almennt kynningarmyndband um sérnám í læknisfræði, upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Athugið að ef umsækjandi ætlar að sækja um fleiri en eina sérgrein þarf að sækja um hverja og eina í aðskildri umsókn, umsóknir og upplýsingar er að finna hér:
Sérnámsstöður í barnalækningum
Sérnámsstöður í barna- og unglingageðlækningum
Sérnámsstöður í bæklunarskurðlækningum
Sérnámsstöður í endurhæfingarlækningum
Sérnámsstöður í geðlækningum
Sérnámsstöður í innkirtlalækningum
Sérnámsstöður kjarnanámi í skurðlækningum
Sérnámsstöður í lyflækningum, fyrra stig (MRCP)
Sérnámsstöður í lyflækningum, seinna stig til fullra sérfræðiréttinda
Sérnámsstöður í myndgreiningu
Sérnámsstöður í ofnæmis- og ónæmislækningum
Sérnámsstöður í réttarmeinafræði
Sérnámsstöður í svæfinga- og gjörgæslulækningum
Sérnámsstöður í taugalækningum
Sérnámsstöður í öldrunarlækningum
Information for applicants who do not speak Icelandic or don‘t have an Icelandic medical license.
Almennar upplýsingar veitir/For general informations please contact: Margrét Dís Óskarsdóttir, yfirlæknir sérnáms á Landspítala – margdis@landspitali.is
