Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Námskeið

Handleiðaranámskeið – tveggja daga námskeið

Staðsetning: Salur Læknafélagsins í Hlíðasmára
Tími: Kl. 8:30–16:00

  • 8.–9. mars 2027

  • 8.–9. nóvember 2027

Hefðbundið tveggja daga handleiðaranámskeið. Þeir sem ekki hafa áður fengið þjálfun.

Á námskeiðinu er m.a. farið í gerð starfsþróunaráætlana, framgangsrýni, hvernig best má nýta ólíkar matsaðferðir og þróa leiðir til úrbóta fyrir sérnámslækna í vanda. Einnig mikilvægi markvissrar endurgjafar og aðferðafræðina sem liggur þar að baki.

Sækja þarf framhaldsnámskeið á 3-5 ára fresti til að viðhalda handleiðararéttindum.

Kennarar: Faghópur um handleiðslu

Upprifjunarnámskeið fyrir handleiðara – hálfs dags námskeið

Staðsetning: Baula á Landakoti
Tími: Kl. 8:30–12:00 eða 12:30–16:00

3. mars 2027

  • Fyrir hádegi

  • Eftir hádegi

Hálfs dags námskeið fyrir handleiðara sem hafa áður lokið handleiðaraþjálfun.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði handleiðslu, rætt hvað hefur gengið vel og hvað mætti betur fara. Einnig verða rifjuð upp ýmis hagnýt atriði.

Kennarar:

  • Inga Sif Ólafsdóttir frá Landspítala

  • Guðrún Ragnarsdóttir frá Háskóla Íslands

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið handleiðaraþjálfun fyrir 3–5 árum og sinna virkri handleiðslu í dag.

Markmið námskeiðanna

Markmið námskeiðanna er að þróa samræmda og heildstæða nálgun við handleiðslu lækna í framhaldsnámi á Íslandi.

Handleiðarar gegna mikilvægu hlutverki í að fylgja sérnámslæknum eftir í gegnum allt sérnámið og tryggja að framvinda þeirra sé í samræmi við námsáætlun.

Námskeiðin eru haldin í samstarfi við Háskóla Íslands.

Skráning: skrifstofasernams@landspitali.is

Handleiðaranámskeið sérnámslækna

24. september 2027 verður handleiðaradagur fyrir lengra komna sérnámslækna (á 3 til 5 ár), haldinn í Baulu á Landakoti, frá klukkan 8 til 16. Þar verður meðal annars farið yfir:

  • Hlutverk handleiðara

  • Endurgjöf

  • Matsblöð

  • Námslæknir í vanda

  • Úrræði og stuðningur

Að námskeiði loknu getur sérnámlæknir handleitt sérnámsgrunnlækna.

Kennarar:

  • Margrét Dís Óskarsdóttir, yfirlæknir sérnáms á Landspítala,

  • Inga Sif Ólafsdóttir, sérfræðilæknir í ly- og lungnalækningum og yfirlæknir sérnámsgrunns á Landspítala

  • Guðrún Ragnarsdóttir, dósent við menntavísindasvið H.Í.

Skráning fer fram hjá skrifstofu sérnáms: skrifstofasernams@landspitali.is