Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Mats- og hæfisnefnd

Þann 16. ágúst 2023 tók gildi reglugerð númer 856/2023 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi.

Mats- og hæfisnefnd er skipuð af ráðherra til að framfylgja þessari reglugerð.

Nefndina skipa:

  • Ólafur Baldursson, án tilnefningar, formaður

  • Katrín Fjeldsted, tilnefnd af Læknafélagi Íslands

  • Eggert Eyjólfsson, tilnefndur af Læknafélagi Íslands

  • Anna Björg Jónsdóttir, tilnefnd af Framhaldsmenntunarráði lækninga

  • Jórunn Atladóttir, tilnefnd af Læknadeild Háskóla Íslands

Starfsmaður nefndarinnar er Andrea Jónsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.

Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna er skipuð af heilbrigðisráðherra til fjögurra ára frá 19. mars 2024 til 18. mars 2028.

Varamenn:

  • Engilbert Sigurðsson, tilnefndur af Læknafélagi Íslands

  • Elínborg Bárðardóttir, tilnefnd af Framhaldsmenntunarráði lækninga

  • Davíð O. Arnar, tilnefndur af Læknadeild Háskóla Íslands

Hlutverk og verkefni

Í 22. gr. reglugerðarinnar er tilgreint hlutverk og verkefni nefndarinnar, sem eru eftirfarandi:

  1. Samþykkja marklýsingar fyrir sérnámsgrunn skv. 18. gr. og sérgreinar skv. 21. gr.

  2. Meta hæfi heilbrigðisstofnana eða deilda innan þeirra til að öðlast viðurkenningu sem kennslustofnanir til að annast sérnám lækna, þ.m.t. sérnámsgrunn, sbr. 18. gr.

  3. Hafa eftirlit með sérnámi og kennslustofnunum eftir þörfum, eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti. Í þessu felst m.a. að tryggja að sérnám fari aðeins fram á viðurkenndum kennslustofnunum, samkvæmt marklýsingu og að handleiðarar hafi lokið og viðhaldið handleiðaraþjálfun.

  4. Útbúa gæðaviðmið fyrir:

    a) gerð marklýsinga,
    b) innleiðingu og framkvæmd sérnáms og
    c) eftirlit með kennslustofnunum og sérnámi.

    Þau verði í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið.

  5. Fylgja eftir ákvörðunum sínum sem teknar hafa verið í samræmi við úttektir og gæðastýringu.

  6. Gera tillögur til ráðherra um hvaða sérgreinar sé boðið upp á sérnám í hér á landi og hvað þær skuli kallast.

  7. Skipuleggja og halda utan um númerakerfi fyrir sérnámslækna.

  8. Veita umsagnir sem krefjast faglegrar sérþekkingar nefndarinnar.

  9. Sjá til þess að handbók um framkvæmd sérnáms lækna sé gefin út og uppfærð reglulega og eftir þörfum, í samvinnu við framhaldsmenntunarráð lækninga.

Starfsreglur

Starfsreglur mats- og hæfnisnefndar er að finna á vef heilbrigðisráðuneytis.

Leiðbeiningar