Heimahjúkrun
Heilbrigðisstofnun Austurlands sinnir heimahjúkrun á Austurlandi en heimahjúkrun er fyrir fólk sem þarf heilbrigðisþjónustu heima hjá sér. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og tekur mið af heilsu, aðstæðum og þörfum hvers og eins.
Hjúkrunarfræðingur metur hvaða þjónustu einstaklingurinn þarf og skipuleggur hana í samráði við hann og aðstandendur.
Heimahjúkrun felur ekki í sér að starfsfólk sé stöðugt á heimilinu. Heimsóknir og þjónusta fara eftir þörfum hvers einstaklings.
Hlutverk heimahjúkrunar er að veita hverjum einstaklingi þá hjúkrun og stuðning sem hann þarf.
Heimahjúkrun
Markmið heimahjúkrunar
Markmið heimahjúkrunar er að styðja einstaklinga við að vera eins sjálfbjarga og mögulegt er.
Með viðeigandi stuðningi er stefnt að því að einstaklingar geti:
búið heima við góðar og öruggar aðstæður
viðhaldið sjálfstæði sínu
eflt eigin heilsu og líðan
dvalið heima eins lengi og hægt er, miðað við heilsu og aðstæður
Hvaða þjónustu veitir heimahjúkrun?
Heimahjúkrun fer fram í vitjunum og getur meðal annars falið í sér:
Aðstoð við aðhlynningu og klæðnað
Aðstoð við persónulegt hreinlæti og böðun
Eftirlit með lyfjatöku og lyfjagjöf, svo sem töflum og sprautum
Sáraskipti og eftirlit með stóma
Mælingar á blóðþrýstingi og blóðsykri
Andlegan stuðning
Almennt eftirlit með heilsufari
Ráðgjöf og leiðbeiningar um heilsu og líðan
Leiðbeiningar um hjálpartæki, hreyfingu, næringu og önnur úrræði
Aðra umönnun og hjúkrunarmeðferð eftir þörfum
Markmiðið er ávallt að styðja einstaklinginn til að vera eins sjálfbjarga og sjálfstæður og mögulegt er.
Hvaða þjónustu veitir heimahjúkrun ekki?
Heimahjúkrun veitir ekki:
Vitjanir á föstum tímum sem eru alltaf þær sömu
Útköll að beiðni skjólstæðings eða aðstandenda
Yfirsetu eða gæslu hjá einstaklingi í lengri tíma yfir daginn
Félagslega þjónustu eða heimilishjálp sem sveitarfélög veita
Hverjir geta fengið heimahjúkrun?
Íbúar á Egilsstöðum sem þurfa á heimahjúkrun að halda, til skemmri eða lengri tíma, geta sótt um þjónustuna.
Hvernig sæki ég um heimahjúkrun?
Umsókn um heimahjúkrun fer í gegnum heimilislækni eða hjúkrunarfræðing á heilsugæslu.
Beiðni getur komið frá:
einstaklingnum sjálfum
aðstandendum
sjúkrahúsi
öðrum heilbrigðis- eða þjónustustofnunum
Heilsugæslustöðvar og sjúkrahús senda umsóknir rafrænt í gegnum Sögu.
Í umsókn þurfa meðal annars að koma fram:
ástæða umsóknar
sjúkdómsgreiningar
helstu heilsufarsvandamál
Beiðnin er síðan send til heimahjúkrunar eða í gegnum MóMa-teymið, þar sem þörf fyrir þjónustu er metin og hún skipulögð. Ef þjónustan er samþykkt kemur hjúkrunarfræðingur í vitjun og metur hjúkrunarþörf einstaklingsins. Þjónustan er síðan skipulögð í samráði við einstaklinginn, fjölskyldu hans og aðrar heilbrigðisstéttir eftir þörfum.
Öryggi á heimili
Heimili skjólstæðings er vinnustaður starfsfólks heimahjúkrunar. Því er mikilvægt að aðstæður séu öruggar og viðeigandi fyrir bæði skjólstæðing og starfsfólk.
Ef aðstæður skapast sem ógna öryggi skjólstæðings eða starfsfólks, til dæmis vegna óreglu eða ofbeldis, eru viðeigandi ráðstafanir gerðar.
Í slíkum tilfellum getur þurft að fresta þjónustu tímabundið á meðan leitað er eftir viðeigandi ráðgjöf og aðstoð.
Hvað kostar heimahjúkrun?
Heimahjúkrun er einstaklingum að kostnaðarlausu.
Hins vegar getur þurft að greiða fyrir þjónustu sem heimahjúkrun vísar í eða aðstoðar einstaklinga við að fá, svo sem rannsóknir, vottorð, sérhæfða meðferð og læknisviðtöl.
Útskrift úr heimahjúkrun
Þörf fyrir heimahjúkrun er endurmetin reglulega.
Þegar einstaklingur þarf ekki lengur á heimahjúkrun að halda hefst undirbúningur að útskrift í samráði við hann og aðstandendur.
Útskrift getur átt sér stað þegar:
einstaklingurinn hefur náð aftur góðri sjálfsbjargargetu
hann getur séð um sig sjálfur að mestu eða öllu leyti
önnur úrræði henta betur
Útskrift er unnin í samstarfi við einstaklinginn, aðstandendur hans og aðrar stofnanir eða þjónustuaðila eftir þörfum.
Teymisstjórar heimahjúkrunar á Egilsstöðum
Ásta Friðrika Bergvinsdóttir
Salka Sif Þ. Hjarðar
Símanúmer
Heilsugæsla Egilsstaðir 470-3000
Vaktsími Heimahjúkrun 860-6840
Lyfjaendurnýjun 470-3020
Markmið
Markmið heimahjúkrunardeildar Heilbrigðisstofnunar Austurlands er að gera einstaklingum kleift að búa áfram heima hjá sér eins lengi og það er unnt, miðað við heilsufar og félagslegar aðstæður, í náinni samvinnu við einstaklingana sjálfa og aðstandendur þeirra.
Hverjir geta fengið heimahjúkrun?
Allir sem búa í Fjarðabyggð og þurfa á henni að halda í lengri eða skemmri tíma, geta notfært sér þjónustu heimahjúkrunar.
Hvernig sæki ég um heimahjúkrun?
Beiðni um heimahjúkrun og heimaþjónustu getur komið frá einstaklingnum sjálfum, aðstandendum hans, sjúkrahúsum eða öðrum stofnunum. Ákvörðun um heimahjúkrun er tekin í samráði við lækni eða hjúkrunarfræðing á heilsugæslustöð, eða sjúkrahúsi. Þeir senda skriflega beiðni til heimahjúkrunardeildar og eða í gegnum MóMa teymið en þar er þjónustan metin og ef þörf er á skipulögð í því teymi og síðan sinnt af fagaðilum á svæðinu.
Hverjir sjá um heimahjúkrunina?
Heimahjúkrunina annast hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og aðrir starfsmenn í nánu samstarfi við fagaðila innan HSA. Teymisstjóri heimahjúkrunar eða hjúkrunarfræðingur heimsækir viðkomandi einstakling og metur þörfina fyrir aðstoð, miðað við heilsufar og félagslegar aðstæður. Að því loknu er gerð áætlun um heimahjúkrunina í samráði við einstaklinginn og aðstandendur hans.
Hvaða þjónustu veitir heimahjúkrun?
Heimahjúkrunin er byggð á vitjunum:
Almenn aðhlynning og aðstoð við klæðnað
Hjálp við persónulegt hreinlæti
Aðstoð við böðun
Eftirlit með réttri lyfjatöku, lyfjagjafir (töflur, sprautur)
Sáraskiptingar, eftirlit með stómíum o.þ.h.
Blóðþrýstings- og blóðsykurmælingar
Andlegur stuðningur
Almennt eftirlit með heilsufari
Ráðgjöf og leiðbeiningar um möguleika til bættrar heilsu (hjálpartæki, líkamsþjálfun, hvers er þörf, hvert skal leita, hollusta, o.s.frv)
Önnur umönnun og hjúkrunarmeðferð við hæfi
Stefnt er að því að aðstoða skjólstæðinga heimahjúkrunar við að vera eins sjálfbjarga og óháða og unnt er, miðað við heilsu og líkamsþrek.
Hvaða þjónustu veitir heimahjúkrunin ekki?
Ekki vitjanir á föstum, tilteknum tímum
Ekki útköll að beiðni skjólstæðings, eða aðstandenda
Ekki að vaka yfir eða vera hjá einstaklingum yfir lengri tíma dagsins
Ekki félagslega þjónustu sem heimilishjálp sveitarfélaganna veitir
Hvenær er heimahjúkrun veitt?
Þjónusta heimahjúkrunar er veitt frá kl. 08:00 til 14:00 og frá kl. 15:00–21:00 mánudag til fimmtudags. Föstudag, laugardag og sunnudag er þjónustan veitt frá 08:00-20:00. Beiðni um þjónustu utan þess tíma er skoðuð í hverju tilfelli fyrir sig.
Hvað kostar heimahjúkrun?
Heimahjúkrunin sjálf er ókeypis. Hins vegar getur þurft að greiða t.d. fyrir þær rannsóknir, vottorð, sérhæfðu meðferð og læknaviðtöl, sem heimahjúkrunin hlutast til um að skjólstæðingar hennar fái.
Yfirmaður heimahjúkrunar
Teymisstjóri heimahjúkrunar i Fjarðabyggð er Margrét Þóra Óladóttir.
Símanúmer
Skiptiborð HSA svarar og leiðbeinir með alla heilbrigðisþjónustu í síma 470-1450 og 470-1420
Heimahjúkrun – teymisstjóri 834-4383, alla virka daga kl.8–16
Sjúkraliðar heimahjúkrunar á vakt í Fjarðabyggð, 470-1414
Sjúkraliðar heimahjúkrunar á vakt í Neskaupstað, 855-2881