Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Gæðamál og vottanir

Jafnlaunavottun

Jafnrétti er okkur mikilvægt en Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) hlut jafnlaunavottun fyrst allra heilbrigðisstofnanna árið 2019 á grundvelli jafnlaunastaðlsins ÍST 85. HSA leggur mikla áherslu á að greidd séu sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óháð kyni, kynþætti eða öðrum órökstuddum viðmiðum. Í mars 2025 fór HSA í sjöunda sinn í gegnum úttekt vegna jafnlaunavottunar og fékk endurnýjað skírteini sem gildir til ársins 2028 en áfram verður farið í viðhaldsúttektir árlega.

Jafnvægisvog FKA

Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur í fjórða sinn hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, sem veitt er fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum stofnunum sem hafa náð markmiði verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn eða efsta stjórnendalagi.

Í framkvæmdastjórn HSA sitja nú þrjár konur og tveir karlar, sem endurspeglar jafnvægi og markvissa stefnu stofnunarinnar í jafnréttismálum.
HSA er stolt af því að vera hluti af þessum öfluga hópi sem vinnur að raunverulegu jafnrétti á íslenskum vinnumarkaði og tekur heilshugar undir einkunnarorð verkefnisins: „Jafnrétti er ákvörðun.“

Græn skref

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) lauk öllum 5 Grænu skrefunum árið 2023, fyrst allra heilbrigðisstofnana. Það sem hefur einkennt vinnuna hjá HSA er samtakamáttur starfsstöðva en allar hafa þær stigið í takt og innleitt í sameiningu umhverfisvænar aðgerðir.

Verkefnið Græn skref er fyrir ríkisstofnanir sem vilja draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna. Aðgerðir Grænu skrefanna snúa m.a. að minni sóun, flokkun úrgangs, innkaupum á umhverfisvottuðum og lífrænum vörum og fræðslu um umhverfismál til starfsfólks.

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalskrif­stofa

Lagarás 22,
700 Egilstaðir

470 3050
info@hsa.is

kt. 610199-2839

Gæðamál og vottanir

Neskaupstaður
470 1450

Egilsstaðir
470 3000

Reyðarfjörður
470 1420

Eskifjörður
470 1430

Seyðisfjörður
470 3060

Vopnafjörður
470 3070

Fáskrúðsfjörður
470 3080

Stöðvarfjörður
470 3088

Breiðdalsvík
470 3099

Djúpi­vogur
470 3090