Hollvinir HSA
Hollvinir Heilbrigðisstofnunar Austurlands gegna mikilvægu hlutverki í að styðja við og efla starfsemi stofnunarinnar. Markmið þeirra er að leggja sitt af mörkum til að bæta aðbúnað og þannig þjónustu með fjáröflun til kaupa á tækjum og búnaði fyrir starfsemina.
Með stuðningi sínum leggja hollvinir mikilvægt lóð á vogarskálarnar við að efla heilbrigðisþjónustu á Austurlandi og stuðla þannig að því að starfsfólk hafi aðgang að þeim búnaði sem þarf til að veita góða og örugga þjónustu.
Framlag hollvina er því dýrmætt fyrir starfsemi HSA og samfélagið á Austurlandi.
Hollvinasamtök sem starfrækt eru fyrir starfsemi HSA
Hollvinasamtök Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað - Facebook síða samtakanna
Hollvinasamtök heilbrigðisþjónustu á Fljótsdalshéraði - Facebook síða samtakanna
Hollvinasamtök Fossahlíðar Seyðisfirði - Þau selja minningarkort sem hægt að að nálgast í Fossahlíð
Hollvinasamtök Uppsala - Facebook síða samtakanna