Félagsmálanefndir skulu stuðla að því að einstaklingar með fíknivanda sem fengið hafa meðferð og læknishjálp, fái nauðsynlegan stuðning og aðstoð til að lifa eðlilegu lífi að meðferð lokinni.
Sækja þarf um leyfi til reksturs slíkrar þjónustu.
Fylgigögn með umsókn
Sakavottorð umsækjanda eða forsvarsmanns félags.
Ferilskrá umsækjanda eða forsvarsmanns félags
Ef umsækjandi er félag skulu eftirfarandi gögn einnig fylgja:
Rekstraráætlun
Ársreikningur
Skráning félags í fyrirtækjaskrá Skattsins, þar sem fram kemur rekstrarform, skipan stjórnar og tilgangur félagsins.
Lög og reglugerðir
Þjónustuaðili
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála