Skammtímadvöl felur í sér sólahringsvistun fyrir börn þar sem tekið er á móti þeim til umönnunar, stuðnings, afþreyingar eða hollra tómstunda. Hér undir falla staðir þar sem fram fer saman eða í hvort í sínu lagi meðferð, tómstundastarf, námskeiðahald, sumardvalir eða önnur óskilgreind umönnun.
Einstaklingum og öðrum rekstraraðilum er heimilt að setja á stofn og reka heimili skv. framangreindu.
Fylgigögn með umsókn ef einstaklingur
Hjúskaparvottorð ef um hjón er að ræða eða sambúðarvottorð ef um óvígða sambúð er að ræða
Samþykki fyrir öflun sakavottorðs allra heimilsmeðlima 15 ára og eldri. Prenta þarf út eyðublaðið og fylla það út.
Læknisvottorð frá heimilislækni sem staðfestir líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda
Staðfesting umsækjanda á því að hafa lokið skyndihjálparnámskeiði fyrir börn
Fylgigögn með umsókn ef félag
Samþykki fyrir öflun sakavottorðs forsvarsmanns
Ferilskrá forsvarsmanns
Rekstraráætlun ef um nýtt félag er að ræða
Lög og reglur
Þjónustuaðili
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála