Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og rétt á að velja sér
búsetustað
hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra.
Fatlað fólk á einnig rétt á félagslegri þjónustu sem gerir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun og þátttöku í samfélaginu. Óheimilt er að binda þjónustu við fatlað fólk því skilyrði að það búi í tilteknu búsetuformi.
Fylgigögn með umsókn
Samþykki fyrir öflun sakavottorðs allra heimilsmeðlima 15 ára og eldri. Ef umsækjandi er félag þarf heimild frá forsvarsmanni félagsins. Prenta þarf út eyðublaðið og fylla það út.
Ferilskrá umsækjanda eða forsvarsmanns félags
Rekstraráætlun
Síðasti ársreikningur (ef félagið er þegar í rekstri)
Skráning félags í fyrirtækjaskrá Skattsins, þar sem fram kemur rekstrarform, skipan stjórnar og tilgangur félagsins
Upplýsingar um húsnæðið, þar sem þjónustan er veitt. Staðsetningu, stærð, fasteignanúmer skv. fasteignaskrá og íbúðarnúmer ef við á.
Tenglar á lög og reglugerðir vegna umsóknar um rekstrarleyfi sérstakt húsnæðisúrræði fyrir fatlaða
Lög um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála nr. 88/2021
Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018
Þjónustuaðili
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála