Félagsleg ráðgjöf tekur til ráðgjafar á sviði fjármála, húsnæðismála, fjölskyldumála auk annarra málefna undir félagsþjónustu sveitarfélaga. Markmið hennar er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar.
Sækja þarf um leyfi til reksturs slíkrar þjónustu.
Fylgigögn með umsókn
Sakavottorð forsvarsmanns félags
Rekstraráætlun eða ársreikningur
Lög og reglugerðir
Þjónustuaðili
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála