Sveitarfélög bjóða fötluðum börnum og ungmennum upp á frístundaþjónustu. Þjónusta skal vera einstaklingsmiðuð, taka mið af stuðningsþörfum og vera hluti af einstaklingsbundinni þjónustuáætlun viðkomandi barns eða ungmennis.
Frístundaþjónustan
Tekur við af almennri frístundaþjónustu grunnskóla og endar þegar viðkomandi lýkur framhaldsskóla. Frístundarþjónustan er í boði
eftir að skóladegi lýkur
eftir atvikum áður en skóladagur hefst
á þeim dögum sem skólar starfa ekki, öðrum en lögbundnum frídögum
Fylgigögn með umsókn
Sakavottorð umsækjanda eða forsvarsmanns félags
Ferilskrá umsækjanda eða forsvarsmanns félags
Útfyllt eyðublað fyrir áhættumat lítilla fyrirtækja með 1 til 9 starfsmenn.
Upplýsingar um húsnæðið, þar sem þjónustan er veitt. Staðsetningu, stærð, fasteignanúmer skv. fasteignaskrá og íbúðarnúmer ef við á
Rekstraráætlun
Síðasti ársreikningur (ef félagið er þegar í rekstri)
Skráning félags í fyrirtækjaskrá Skattsins, þar sem fram kemur rekstrarform, skipan stjórnar og tilgangur félagsins
Tenglar á lög og reglugerðir vegna umsóknar um leyfi til að reka frístundaþjónustu
Þjónustuaðili
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála