Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Panta tíma í leghálsskimun

Leghálsskimun er rannsókn á leghálsi fyrir einkennalausa, þar sem skimað er fyrir leghálskrabbameini. Öllum með legháls á aldrinum 23 til 64 ára og hafa stundað kynlíf, er ráðlagt að mæta reglulega í skimun.

Ef þú ert með einkenni frá kvenlíffærum, skaltu leita til kvensjúkdómalæknis

Boðsbréf í skimun

Boðsbréf eru send til kvenna á aldrinum:

  • 23 til 29 ára, á 3 ára fresti.

  • 30 til 64 ára, á 5 ára fresti.

Tímapantanir

Ef þú hefur fengið boðsbréf í skimun, hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni, getur þú fengið skimun á heilsugæslu að eigin vali með því að:

Skimun á heilsugæslustöð

Skimun tekur um 10 mínútur og er framkvæmd af hjúkrunarfræðingi eða ljósmóður. Sýni er tekið úr leghálsi og sent til rannsóknar. Einnig er hægt að leita til kvensjukdómalækna.

Niðurstöður skimunar

Rafrænt svarbréf er sent í gegnum Heilsuveru og island.is þegar niðurstöður rannsóknar liggja fyrir.

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða

Best aðgengi fyrir hreyfihamlaða er á Heilsugæslunum Glæsibæ, Hamraborg, Höfða, Kirkjusandi, Mosfellsumdæmi, Seltjarnarnesi og Vesturbæ.

Frekari upplýsingar