Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Leghálsskimun

Ef þú ert með einkenni frá kvenlíffærum, skaltu leita til kvensjúkdómalæknis.

Skimun fyrir krabbameini í leghálsi

Leghálsskimun er rannsókn á leghálsi fyrir einkennalausa, þar sem skimað er fyrir leghálskrabbameini. Öllum með legháls á aldrinum 23 til 64 ára og hafa stundað kynlíf, er ráðlagt að mæta reglulega í skimun.

Heilsugæslan sér um skimanir fyrir krabbameini í leghálsi á landsvísu

Boðsbréf í skimun eru send til allra með legháls á aldrinum:

  • 23 til 29 ára, á 3 ára fresti

  • 30 til 64 ára, á 5 ára fresti

Þau sem hafa fengið boðsbréf geta pantað sér tíma eða mætt á heilsugæslustöð sem hentar.

Tímar í leghálsskoðun

Ef þú hefur fengið boðsbréf í skimun, hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni, getur þú fengið tíma í skimun þegar þér hentar og á þeirri heilsugæslustöð sem hentar best.

Algengar spurningar

Sérstakar aðstæður

Orðskýringar