Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Forsíða

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Brjóstaskimun

Ef þú ert með einkenni frá brjósti getur þú haft samband í síma 1700 eða á netspjalli Heilsuveru fyrir forgangstíma í skoðun.

Skimun fyrir krabbameini í brjóstum

Brjóstaskimun er rannsókn á brjóstum fyrir einkennalausar konur. Öllum konum á aldrinum 40 til 74 ára er boðið í brjóstaskimun. Samhæfingarstöð krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sér um að senda öllum konum boðsbréf í brjóstaskimun.

Tímapantanir í skimun fyrir brjóstakrabbameini

Konur á aldrinum:

  • 40 til 69 ára, fá boð á tveggja ára fresti.

  • 70 til 74 ára, fá boð á þriggja ára fresti.

Konur eldri en 74 ára fá ekki boðsbréf, en eru velkomnar í skimun.

Bóka tíma í brjóstaskoðun

Brjóstamiðstöð Landspítala sér um tímabókanir í brjóstaskimun.

Algengar spurningar