Samhæfingarstöð krabbameinsskimana
Um Samhæfingarstöð krabbameinsskimana
Samhæfingarstöð krabbameinsskimana (SKS) gegnir lykilhlutverki í skipulagi og þróun krabbameinsskimana á Íslandi ásamt því að vinna markvisst að því að tryggja gæði skimana. SKS sér um sendingu boðs-og svarbréfa og sinnir gæðaeftirliti um að skimanir fari fram í samræmi við leiðbeiningar embættis landlæknis. Auk þess sinnir SKS fræðslu og ráðleggingum um skimanir til fagaðila og almennings.
Krabbameinsskimun er skipulögð leit að krabbameinum eða forstigi þeirra hjá einkennalausum einstaklingum
Skipulögð skimun gerir kleift að greina sjúkdóminn á frumstigi, áður en einkenna verður vart, sem eykur líkur á árangursríkari meðferð og bættum horfum. Finnir þú fyrir einkennum eru upplýsingar um rétt viðbrögð í undir viðkomandi skimun.

Brjóstaskimun
Brjóstaskimun er rannsókn á brjóstum fyrir einkennalausa þar sem skimað er fyrir brjóstakrabbameini

Leghálsskimun
Leghálsskimun er rannsókn á leghálsi fyrir einkennalausa, þar sem skimað er fyrir leghálskrabbameini

Ristilskimun
Markmiðið er að greina forstig eða byrjunarstig krabbameina, sem auðveldar meðferð og bætir lífslíkur
Hafa samband við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana
Hægt er að hafa samband, senda gögn, koma með ábendingar eða afþakka boð í skimun:
Sími 513 6700, frá 8:30 til 12 virka daga
Netfang: krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is
Örugg gagnaskil með Signet Transfer
