Samhæfingarstöð krabbameinsskimana
Almennar upplýsingar
Samhæfingarstöð krabbameinsskimana (SKS) gegnir lykilhlutverki í skipulagi og þróun krabbameinsskimana á Íslandi. SKS vinnur markvisst að því að tryggja gæði skimana, hvetja til þátttöku og að þær fari fram í samræmi við leiðbeiningar Embættis landlæknis.
SKS sér einnig um sendingu boðs-og svarbréfa og sinnir fræðslu og ráðleggingum um skimanir til fagaðila og almennings.
Krabbameinsskimun er reglubundin leit að ákveðnum tegundum krabbameina eða forstigi þeirra hjá einkennalausum einstaklingum.
Markmið krabbameinsskimana er að lækka dánartíðni af völdum þeirra meðal þjóðarinnar. Með skipulagðri skimun er hægt að greina forstig krabbameins, krabbamein á frumstigi eða jafnvel koma í veg fyrir krabbamein, oftast áður en einkenna verður vart og þannig auka líkur á árangursríkari meðferð og bættum horfum.

Brjóstaskimun
Brjóstaskimun er rannsókn á brjóstum fyrir einkennalausa þar sem skimað er fyrir brjóstakrabbameini

Leghálsskimun
Leghálsskimun er rannsókn á leghálsi fyrir einkennalausa, þar sem skimað er fyrir leghálskrabbameini

Ristilskimun
Markmiðið er að greina forstig eða byrjunarstig krabbameina, sem auðveldar meðferð og bætir lífslíkur
Hafa samband við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana
Hægt er að hafa samband, senda gögn, koma með ábendingar eða afþakka boð í skimun:
Sími 513 6700, frá 8:30 til 12 virka daga
Netfang: krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is
Örugg gagnaskil með Signet Transfer
