Hjá Heilsubrú eru gerðar leiðnimælingar þegar fylgjast þarf með þyngdarstjórnunarkerfum og meta samsetningu líkamans. Þá fást upplýsingar um þyngd og hlutfall fitu, vöða og beina, auk fitudreifingar um innri líffæri.
Niðurstöðurnar hjálpa við að meta breytingar á líkamanum, t.d. þegar fólk er í lífstílsmóttöku á heilsugæslunni, á þyngdarstjórnunarlyfjum eða annarskonar inngripum sem hafa áhrif á þyngd.
Ef þörf er á endurteknum mælingum skal hafa í huga að breytingar á líkamssamsetningu gerast ekki hratt. Venjulega líða sex til tólf mánuðir áður en leiðnimæling er endurtekin.