Heilsubrú
Efnisyfirlit
Þjónusta
Kvenheilsuteymið veitir fræðslu og ráðgjöf en sinnir einnig sjúkdómum og heilsufarsvanda sem eingöngu eru til staðar hjá konum.
Allar konur geta skráð sig á námskeið, sem er fyrsta skrefið. Eftir þátttöku í hóptímum er hægt taka næstu skref varðandi greiningu og meðferð innan eða utan Heilsubrúar.
Hugræn atferlismeðferð (HAM) er árangursrík leið til að takast á við sálrænan vanda
Heilsubrú býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) á hópnámskeiðum sem standa yfir í fjórar til sex vikur
Í boði eru HAM-námskeið við streitu, kvíða og þunglyndi, svefnleysi og fyrir bætt sjálfsmat.
Heilsubrú býður upp á námskeið sem hentar þeim sem vilja fræðast um sykursýki tegund 2.
Markmiðiðið er að auka þekkingu og skilning á sjúkdómnum til að bæta líðan og meðferðarheldni.
Nánari upplýsingar og skráning: Sykursýki - Fræðsla
Næringarfræðingar hjá Heilsubrú veita einstaklingsmiðaða ráðgjöf og næringarmeðferð.
Heilbrigðisstarfsfólk á heilsugæslustöðvum vísar einstaklingum í viðtöl hjá næringarfræðingi.
Næringarfræðingarnir veita einnig ráðgjöf til fagfólks og þátt í fræðslu og námskeiðshaldi Heilsubrúar.
Námskeið: Þyndarstjórnunarkerfið
Hjá Heilsubrú starfa kvensjúkdóma- og fæðingarlæknar sem veita ráðgjöf til verðandi mæðra. Einnig sjá ljósmæður um ómskoðanir eftir þörfum.
Ljósmæður á heilsugæslustöðvum HH vísa konum í þjónustuna.
Einnig eru í boði námskeið fyrir verðandi foreldra.
Heilsubrú er heimastöð lyfjafræðinga sem veita þjónustu á heilsugæslustöðvum.
Heilsubrú er heimastöð hjúkrunarfræðinga sem starfa í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir veita einstaklingsmiðaða ráðgjöf og hópfræðslu um geðheilbrigði, kynheilbrigði og almennt heilsufar.
Hjúkrunarfræðingarnir veita nemendum einnig leiðsögn um heilbrigðiskerfið eftir þörfum.
Forstöðumaður: Sólrún Ólína Sigurðardóttir
Skrifstofustjóri: Rakel Ólafsdóttir
