Þyngdarstjórnunarkerfið
Markmið námskeiðsins er að aðstoða þátttakendur að byggja upp heilbrigða daglega lífshætti sem styðja við eðlilega þyngdarstjórn líkamans.
Stefnt er að því að í lok námskeiðsins hafi hver þátttakandi í höndum bjargráð og þekkingu til að setja sér raunhæf markmið.
Námskeiðið er opið öllum kynjum, 18 ára og eldri.
Efni námskeiðsins
Námskeiðið er fjögur skipti og skiptist í:
1. Þyngdarstjórnunarkerfi líkamans
Fjallað er um hvernig daglegar venjur, mataræði, hreyfing, svefn og andleg líðan vinna saman að heilbrigðum grunni.
Hvernig þyngdarstjórnunarkerfi líkamans vinna.
Hvernig er hægt að koma betra jafnvægi á mataræði, hreyfingu, svefn og andlega líðan
Hvenær verður ofþyngd að sjúkdómnum offitu?
Leiðbeinendur: Íris Dröfn Björnsdóttir og Sigrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingar.
2. Andleg líðan og svefn
Tengsl andlegrar heilsu og þyngdarstjórnunar.
Bjargráð: Aðferðir til að takast á við streitu og erfiðar tilfinningar.
Svefn: Áhrif svefns á líkamann og þyngdarstjórnun, helstu svefnraskanir og ráð við svefnleysi.
Leiðbeinandi: Haraldur Sigurður Þorsteinsson, sálfræðingur.
3. Næring og hreyfing
Fjallað er um hvernig næring og hreyfing styðja við heilsu, vellíðan og þyngdarstjórnun.
Hvernig næring og hreyfing hafa áhrif á heilsu, vellíðan og þyngdarstjórnunarkerfi líkamans.
Hvað einkennir heilsusamlegt samband við mat.
Verkfæri til að skoða eigin venjur og finna raunhæf skref sem styðja við heilsu og vellíðan.
Hugmyndir og ráð um hreyfingu sem tekur mið af getu, áhuga og aðstæðum hvers og eins.
Leiðbeinendur: Edda Ýr Guðmundsdóttir, næringarfræðingur og sjúkraþjálfari og Óla Kallý Magnúsdóttir, næringarfræðingur.
4. Sérhæfð offitumeðferð
Yfirlit yfir lyfjameðferðir og efnaskiptaaðgerðir við offitu. Skoðað er:
Hvenær offitumeðferð á við.
Hvernig inngripin virka inn í þyngdarstjórnun líkamans.
Hvert skal leita ef talið er skynsamlegt að nýta offitumeðferð.
Hvernig þarf að vinna með heilbrigðan lífsstíl samhliða inngripum.
Hvernig eftirliti skuli háttað.
Leiðbeinendur: Íris Dröfn Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Sigrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir
Fyrirkomulag
Námskeiðið er annað hvort staðnámskeið eða fjarnámskeið:
Staðnámskeið er haldið í Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð (sami inngangur og Læknasetrið og Gáski).
Fjarnámskeið er í gegnum Teams fjarfundakerfið og eru ætlaðir fólki á landsbyggðinni og þeim sem eiga ekki heimangengt. Fundarboð er sent út samdægurs.
Tímalengd námskeiðisins er fjórar vikur
Hist er einu sinni í viku.
90 mínútur í hvert skipti.
Kostnaður
Þátttakendur greiða 17.206 krónur fyrir námskeiðið.
Nánari upplýsingar
Umsjón með námskeiði: Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hægt er að fá frekari upplýsingar eða tilkynna forföll með tölvupósti á heilsubru@heilsugaeslan.is.
Næstu námskeið
Hefst 28. október 2026
09:00 til 11:00
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík. 2. hæð
