Ekki eru takmörk fyrir fjölda heimila í vali, sækja má um öll heimili á höfuðborgarsvæðinu, sem og heimili á landinu öllu.
Langtímadvöl
Droplaugarstaðir, Reykjavík
Eir, Reykjavík
Grund, Reykjavík
Hamrar, Mosfellsbæ
Hrafnista Boðaþing, Kópavogi
Hrafnista við Laugarás, Reykjavík
Hrafnista við Hraunvangi, Hafnarfirði
Hrafnista, Ísafold, Garðabæ
Hrafnista Skógarbær, Reykjavík
Hrafnista Sléttuvegi, Reykjavík
Mörk, Reykjavík
Seltjörn, Seltjarnarnesi
Skjól, Reykjavík
Sóltún, Reykjavík
Sunnuhlíð, Kópavogi
Sólvangur, Hafnarfirði
Á nokkrum heimilum eru bæði einbýli og tvíbýli. Þá bjóðast gjarnan tvíbýli við innlögn en hægt að sækja síðar um innanhúss flutning. Þetta á við um Hrafnistu Skógarbæ og Skjól og í færri tilvikum Eir og Grund. Biðtími er styttri eftir þessum rýmum en almennt gerist.
Sameiginlegt salerni er á Hrafnistu Hraunvangi og á nokkrum einbýlum á Eir, Grund, Hrafnistu Laugarási og Skjóli.
Lokuð heilabilunardeild er á Droplaugarstöðum, Eir, Grund, Hrafnistu Laugarási, Hrafnistu-Skógarbæ, Seltjörn, Skjóli og Sunnuhlíð.
Geðrými eru í Mörk, Ási Hveragerði og Fellsenda í Búðardal.
Hjónarými eru á Eir, Grund, Hrafnistu Hraunvangi og Hrafnistu Laugarási. Einnig gætu tvíbýli nýst sem hjónarými.
Ekki eru takmörk fyrir fjölda heimila í vali, sækja má um öll heimili á höfuðborgarsvæðinu, sem og heimili á landinu öllu.
Hvíldarinnlagnir bjóðast á Grund, Hrafnistu Laugarási og Hrafnistu Hafnarfirði á höfuðborgarsvæðinu. Einnig bjóðast hvíldarinnlagnir á landsbyggðinni. Heimilin sjálf halda utan um hvíldarbiðlista og taka á móti óskum um hvíldarinnlögn.