Færni og heilsumatsnefnd
Efnisyfirlit
Spurningar og svör
Upplýsingar og aðstoð
Öldrunarhjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöð geta veitt upplýsingar um þá aðstoð sem er í boði heim og sótt um heimahjúkrun ef við á. Eins geta ráðgjafar á þjónustumiðstöðvum aðstoðað við umsóknir um félagslega heimaþjónustu.
Varanleg dvöl
Þegar öll raunhæf félagsleg og heilsufarsleg úrræði og aðstoð til dvalar í heimahúsi eru fullreynd svo sem af hálfu heimahjúkrunar og félagslegs heimastuðnings.
Þegar viðeigandi greiningarvinna, meðferð, þjónusta og endurhæfing hafa verið reynd til fullnustu með bætta heilsu og sjálfsbjargargetu að leiðarljósi.
Bráð veikindi eru um garð gengin og eftir atvikum endurhæfingu lokið.
Leita skal til öldrunarhjúkrunarfræðings á heilsugæslustöð, heimahjúkrunar eða heimilislæknis eftir nánari leiðbeiningum varðandi umsóknarferlið.
Þegar umsókn berst er kallað eftir umsögnum fagaðila sem þekkja til og sinna umsækjanda. Þegar öll umbeðin gögn hafa borist fer umsóknin fyrir næsta nefndarfund sem er alla jafna vikulega og niðurstaða er send skriflega til umsækjanda eða aðstandanda. Þetta ferli getur tekið mislangan tíma allt eftir því hversu hratt gögn berast. Gera má ráð fyrir að þetta ferli taka nokkrar vikur.
Gildistími er 12 mánuðir frá samþykktardegi. Ef einstaklingur er ekki vistaður innan árs þarf að senda inn nýja umsókn um færni-og heilsumat áður en það rennur út, sé enn þörf fyrir hjúkrunarrými.
Á nokkrum heimilum eru bæði einbýli og tvíbýli og þá bjóðast gjarnan tvíbýli við innlögn en hægt að sækja síðar um innanhúss flutning. Þetta á við um Hrafnistu Skógarbæ og Skjól og í færri tilvikum Eir og Grund. Biðtími er styttri eftir þessum rýmum en almennt gerist. Sameiginlegt salerni er á Hrafnistu Hraunvangi og á nokkrum einbýlum á Eir, Grund, Hrafnistu Laugarási og Skjóli.
Lokuð heilabilunardeild er á Droplaugarstöðum, Eir, Grund, Hrafnistu Laugarási, Hrafnistu-Skógarbæ, Seltjörn, Skjóli og Sunnuhlíð.
Geðrými eru í Mörk, Ási Hveragerði og Fellsenda í Búðardal.
Hjónarými eru á Eir, Grund, Hrafnistu Hraunvangi og Hrafnistu Laugarási. Einnig gætu tvíbýli nýst sem hjónarými.
Já, hægt er að senda inn breytingar á staðarvali til Færni og heilsumatsnefndar í netfangið faerniogheilsa@heilsugaeslan.is.
Biðtími eftir hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu er mjög langur og getur verið á bilinu 6 mánuðir (ef byrjað er í tvíbýli) upp í á annað ár, allt eftir staðarval og hreyfingu á plássum á viðkomandi heimilum. Þegar pláss losnar eru tveir einstaklingar tilnefndir í plássið og heimilið velur.
Nei. Það eina sem gæti mögulega stytt biðtímann er að fjölga stöðum í vali til dæmis með því að velja tvíbýlisstaðina en þó er ekki víst að það stytti biðtímann.
Með samþykki fyrir varanlegu hjúkrunarrými fylgir heimild til hjúkrunarhvíldarinnlagnar í allt að 8 vikur, sem er til þess létta biðina og æskilegt er að skipta niður í nokkur skemmri tímabil.
Hvíldarinnlagnir bjóðast á Grund, Hrafnistu Laugarási og Hrafnistu Hafnarfirði á höfuðborgarsvæðinu. Einnig bjóðast hvíldarinnlagnir á landsbyggðinni. Heimilin sjálf halda utan um hvíldarbiðlista og taka á móti óskum um hvíldarinnlögn.
Hvíldarinnlögn
Með hvíldarinnlögn er átt við tímabundna dvöl í hjúkrunarrými. Dvölin getur varað frá nokkrum dögum upp í 8 vikur. Markmiðið með hvíldarinnlögn er að gera fólki kleift að búa áfram á eigin heimili.
Þegar umsókn um hvíldarinnlögn berst er kallað eftir umsögum fagaðila sem þekkja til og sinna umsækjanda. Þegar öll umbeðin gögn hafa borist fer umsóknin fyrir næsta nefndarfund þar á eftir og niðurstaða er send til umsækjanda eða aðstandanda. Þetta ferli getur tekið mislangan tíma allt eftir því hversu hratt gögn berast. Gera má ráð fyrir að þetta ferli taki nokkrar vikur.
Á höfuðborgarsvæðinu bjóðast hvíldarinnlagnir á Grund, Hrafnistu Laugarási og Hrafnistu Hafnarfirði. Einnig bjóðast hvíldarinnlagnir á landsbyggðinni.
Gera má ráð fyrir að löng bið geti verið eftir hvíldarinnlögn, umsækjanda/aðstandanda er bent á að hafa samband tímanlega við heimilið þegar hvíldarinnlagnar er óskað og samþykki liggur fyrir. Heimilin sjálf halda utan um hvíldarbiðlista og taka á móti óskum um hvíldarinnlögn.
