Samhæfingarstöð krabbameinsskimana
Ristilskimun
Ef þú ert með einkenni frá ristli eða endaþarmi, hafðu samband við heilsugæslustöð fyrir forgangstíma í skoðun.
Skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi
Ristilskimun er rannsókn þar sem skimað er fyrir blóði í hægðum hjá einkennalausu fólki. Markmiðið er að greina forstig eða byrjunarstig krabbameina, sem auðveldar meðferð og bætir lífslíkur.
Verkefnið Skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi er í innleiðingu
Samhæfingarstöð krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sér um umsjón, skipulag og samhæfingu ristilskimana á landsvísu.
Innleiðing ristilskimunar
Innleiðingin og undirbúningur skimana fylgir evrópskum skimunarleiðbeiningum og tillögum Skimunarráðs. Ferlið verður gert í áföngum:
Upphaf: Skimun hefst hjá fólki á aldrinum 60 til 69 ára.
Full innleiðing fyrir árið 2031: Við lok innleiðingu verður öllum á aldrinum 50 til 74 ára með lögheimili á Íslandi boðin þátttaka í skimuninni annað hvert ár.
Skimunaraðferðin felst í sjálfsprófi sem tekið er heima
Sjálfsprófið, svonefnt FIT-próf, (e. Fecal Immunochemical Test), getur greint blóð í hægðum. Sýni er tekið heima og er sent til rannsóknar á Landspítala. Greinist blóð í sýninu, er boðin ristilspeglun til frekari skoðunar.

Taka þátt í skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi
Ef þú hefur fengið boðsbréf í skimun, geturðu tekið þátt á mjög einfaldan hátt.
