Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þátttaka í skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi

Skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi er rannsókn sem leitar að blóði í hægðum hjá einkennalausum einstaklingum. Markmiðið er að greina forstig eða byrjunarstig krabbameina, sem auðveldar meðferð og bætir lífslíkur.

Boð í skimun

Einstaklingar á aldrinum 60 til 69 ára og með lögheimili á Íslandi, er boðin þátttaka annað hvert ár.

  1. Þú færð rafrænt boð um skimun á Heilsuveru.

  2. Sýnatökusett er sent í pósti til þín.

  3. Þú tekur hægðarsýni heima.

  4. Þú skilar sýninu á heilsugæslustöð eða setur í póst í umslagi sem fylgir sýnatökusettinu, merkt rannsóknastofu Landspítala., sem rannsakar sýnið og athugar hvort blóð sé í því.

Þú getur einnig afþakkað boð um þátttöku.

Ef þú ert í meðferð eða eftirliti vegna sepa, krabbameins eða bólgusjúkdóms í ristli og endaþarmi ættir þú líklega ekki að taka þátt í skimun. Ræddu það við við lækninn þinn eða Samhæfingarstöð krabbameinsskimana.

Niðurstöður skimunar

Niðurstöður úr skimun eru sendar til þín rafrænt á Heilsuveru innan fjögurra vikna.

  • Ef ekkert blóð greinist í sýninu, verður þér sent boð um að taka aftur þátt í skimuninni eftir tvö ár.

  • Ef blóð greinist í hægðasýninu verður þér boðin speglun á ristli og endaþarmi innan fjögurra vikna, sem getur greint hvort krabbamein, eða forstig krabbameins, sé til staðar.

  • Ef þú afþakkar ristilspeglun, verður þér aftur boðin þátttaka í skimun með hægðaprófi eftir tvö ár.

Fræðsluefni

Bæklingur um skimun vegna krabbameins í ristli og endaþarmi er aðgengilegur á þremur tungumálum.