Öryggi gangandi vegfarenda
Gangandi vegfarendur skulu nota
gangstétt eða gangstíg
þann hluta vegar sem liggur utan akbrautar
vegbrúnina, vinstra megin á móti umferð og aldrei fleiri en tveir vegfarendur samhliða
Gangandi vegfarandi sem leiðir reiðhjól eða létt bifhjól
skal ganga við hægri vegbrún
má nota gagnstæða vegarbrún vegna hættu eða sérstakra aðstæðna
Gengið yfir akbraut eða hjólastíg
Sérstaka aðgát skal sýna gagnvart ökutækjum sem nálgast. Best er að nota:
gangbraut eða aðra gönguþverun ef hún er nálæg
göng og brú fyrir gangandi vegfarendur
annars að ganga þvert yfir akbraut og sem næst vegamótum
Þar sem umferð er stjórnað af lögreglu eða með umferðarljósum má einungis ganga yfir akbraut þegar
grænt ljós er fyrir umferð gangandi vegfarenda
lögreglan gefur til kynna með merkjagjöf að umferð gangandi sé heimil
Umferð á gangstígum
Allir vegfarendur á stígum og gangstéttum ættu að miða við að
í gildi sé hægri umferð
að taka eigi fram úr vinstra megin
Þar sem yfirborðsmerkingar aðgreina stíga fyrir gangandi og hjólandi, borgar sig að virða þær merkingar.
Þjónustuaðili
Samgöngustofa