10000 leitarniðurstöður
Sýslumenn hlutu viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf við sjálfvirknivæðingu opinberrar þjónustu, og sérstaklega stafræna málsmeðferð dánarbúa
Leyfisbréf kennara aðgengileg á Ísland.is og í fyrsta fasa verkefnisins eru þegar aðgengileg útgefin leyfisbréf frá 1. janúar 2020.
Við erum að leita að sérfræðingi í landupplýsingateymi Lands og skógar sem tekst á við fjölbreyttar áskoranir í gagnaöflun, vinnslu, greiningu, vistun og miðlun gagna. Starfið tilheyrir stoðsviði gagna, miðlunar og nýsköpunar.
Vegna margra fyrirspurna um stöðu mála, sem eru til afgreiðslu hjá embætti landlæknis, vill embættið koma því á framfæri að vegna fordæmalausra anna er fyrirsjáanlegt að tafir verði áfram á afgreiðslu erinda í mörgum málaflokkum hjá embættinu.
Meirihluti notenda heilsugæslustöðva á landsbyggðinni ber mikið traust til heilsugæslunnar og er ánægður með þjónustuna, eða rétt rúm 60% þeirra sem tóku þátt í nýlegri könnun Sjúkratrygginga.
Inflúensa A var staðfest hjá 21 einstaklingi, sem er fækkun miðað við undanfarandi vikur, sjá vef veirufræðideildar Landspítala. Þar af greindust 13 einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 8 með inflúensu A(H3N2).
Athöfn vegna úthlutunar styrkja úr Lýðheilsusjóði fór fram í dag, í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum nú í morgun frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um tímabundinn stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík.
Anna Sigríður Vilhelmsdóttir verkefnastjóri á upplýsingatæknisviði Fiskistofu flutti erindið „ Frá faxi til framtíðar“, á ráðstefnunni Tengjum ríkið 22. september síðastliðinn.
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða lögfræðing í fullt starf á svið eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu.