10000 leitarniðurstöður
Fiskistofa hefur endurreiknað gjald vegna fiskeldis í sjó fyrir árið 2024.
Miðvikudaginn 25. janúar nk. kl. 16.00 verður opinn fræðslufundur í streymi og í Hlíðasmára 11 fyrir þau sem stefna að töku ellilífeyris hjá TR. Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem eru að huga að starfslokum.
Opið hús á SHH, Laugavegi 166, 5. hæð milli kl. 14 og 17 mánudaginn 23. september. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, málstöð íslensks táknmáls, fagnar alþjóðadegi táknmála með opnu húsi í nýju húsakynnum stofnunarinnar.
Á stofnfundi Stuðningsnets sjúklingafélaganna sem var haldinn nýlega flutti Birgir Jakobsson, landlæknir ávarp þar sem hann meðal annars undirstrikaði mikilvægi þess að sjúklingar væru virkir þátttakendur í eigin heilbrigðisþjónustu.
Tilfellum af staðfestri inflúensu fer fækkandi en greiningar af týpu B eru í miklum meirihluta. Klínískum greiningum á inflúensulíkum einkennum fjölgaði lítillega á milli vikna. COVID-19 greiningum fer fjölgandi miðað við síðustu tvær vikur og var yfir fjórðungur sýna jákvæður í undangenginni viku.
Dagur hvíta stafsins, alþjóðlegur baráttu- og vitundardagur blindra og sjónskertra, er haldinn 15. október ár hvert. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á hvíta stafnum og hagsmunamálefnum blindra og sjónskertra einstaklinga.
Hinn 1. janúar 2020 hækka gjöld vegna útgáfu starfsleyfa og vottorða í samræmi við ákvæði laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum.
Lyfjastofnun hefur verið tilkynnt um fimm alvarlegar aukaverkanir, þar af fjögur andlát, sem hugsanlega kunna að tengjast bólusetningu við SARS-CoV-2 veirunni. Í öllum tilfellunum erum að ræða aldraða einstaklinga á hjúkrunarheimilum með undirliggjandi sjúkdóma.
Vikuna 21. – 25. júní verða um 33 þúsund einstaklingar bólusettir hér á landi með þremur tegundum bóluefna. Samtals fá um 18 þúsund bóluefni Pfizer, þar af fá 8500 þúsund fyrri bólusetninguna.
Heilbrigðisráðherra fól landlækni að leita skýringa á því hversvegna svonefnt biðlistaátak 2016-2018 hefur ekki skilað sér í meiri styttingu biðtíma eftir liðskiptaaðgerðum en raun ber vitni. Landlæknir hefur nú skilað ráðherra minnisblaði þar að lútandi ásamt nýrri greiningu á stöðu biðlista.