Á síðustu dögum hafa skapast miklar umræður í þjóðfélaginu um skógrækt sem hófust með umfjöllun fjölmiðla um skógræktarverkefni á vegum einkaaðila í landi sveitarfélagsins Norðurþings í Saltvík. Við hjá Landi og skógi höfum í kjölfar þessarar miklu umfjöllunar átt fund með fulltrúum framkvæmdaaðila og landeigenda til að fara yfir þessa tilteknu framkvæmd til að skoða hvort eitthvað og þá hvað hafi farið úrskeiðis.