Fara beint í efnið

Lausnir á tímabundnum greiðsluvanda

Ef þú átt í tímabundnum greiðsluerfiðleikum, til dæmis vegna veikinda, slyss eða atvinnuleysis og getur ekki gert greiðslusamning, eru nokkrar lausnir í boði.

Hægt er að:

  • Fresta greiðslum

  • Skuldbreyta láni (bæta vanskilum við höfuðstól)

  • Lengja lánstímann

Skilyrði

  • Greiðsluvandinn er vegna óvæntra tímabundinna erfiðleika, t.d. veikinda, slyss, skertra tekna, atvinnuleysis eða annarra ófyrirséðra atvika.

  • Aðrir lánveitendur þínir samþykki líka að aðstoða.

  • Greiðslubyrði þín (samkvæmt greiðslumati) er hærri en greiðslugeta, eða fyrirséð að svo verði.

  • Þú hefur greiðslugetu fyrir greiðslubyrði viðkomandi lausnar.

Umsókn um lausn á greiðsluvanda

Umsókn

Þú sækir um á Mínar síður Ísland.is. Þú getur getur hakað við þá lausn sem þú telur þig þurfa í umsókninni, en ráðgjafi mun að lokum meta hvaða lausn hentar hverju sinni.

Fylgigögn

  • Staðfesting á tímabundnum vanda, til dæmis læknisvottorð eða staðfesting á atvinnuleysi.

  • Greinargerð um af hverju þú þarft á lausninni að halda og hvernig þú heldur að hún muni hjálpa.

Í kjölfar umsóknarinnar þarftu að fara í greiðslumat.

Ráðgjafi HMS metur hvaða lausn hentar best út frá aðstæðum þínum. Málið er því næst lagt fyrir Lána- og húsnæðisbótanefnd HMS sem tekur endanlega ákvörðun. Þegar ákvörðun liggur fyrir verður hún birt í stafrænu pósthólfi þínu á island.is.

Umsókn samþykkt

  1. Þú færð tölvupóst þegar lánaskjöl með skilmálabreytingum eru tilbúin.

  2. Ef það er lán á húsnæðinu á aftari veðrétti (frá annarri lánastofnun) þarf sú lánastofnun að árita samþykki sitt á skilmálabreytinguna.

  3. Þegar skjöl eru tilbúin getur þú nálgast þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21. Einnig er hægt að óska eftir að fá skjölin send í pósti ef þú býrð á landsbyggðinni.

  4. Þegar lánaskjölum hefur verið þinglýst skilar þú þeim inn aftur til HMS og breytingin er afgreidd.

Kostnaður

Umsókn synjað

Verði umsókn um lausn á greiðsluvanda synjað verður ákvörðunin birt í stafrænu pósthólfi þínu á island.is. Ef ný gögn eða upplýsingar liggja fyrir getur þú óskað eftir endurupptöku málsins.

Teljir þú ákvörðunina ranga getur þú kært hana til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Tengt efni