Fara beint í efnið

Kærunefnd jafnréttismála

Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök geta vísað málum til kærunefndar jafnréttismála ef þau telja að brotið hafi verið gegn jafnréttislögum, hvort sem er í eigin nafni eða fyrir hönd félagsmanna.

Ferlið hjá nefndinni er einfalt og yfirleitt þarf ekki utanaðkomandi aðstoð. Ráðgjafar Jafnréttisstofu eru þó ávallt til reiðu til að fara yfir mál og veita stuðning ef óskað er.

Kærunefndin tekur mál til meðferðar og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort brot hafi átt sér stað. Úrskurðir nefndarinnar eru bindandi, en málsaðilar geta vísað þeim áfram til dómstóla.

Heimasíða kærunefndar jafnréttismála
Úrskurðir kærunefndar jafnréttismála

Hefur þú orðið fyrir mismunun?

Mismunun getur komið fram á marga vegu, til dæmis við ráðningu í starf eða þegar fólk sækir sér þjónustu. Það getur verið erfitt að meta hvort um mismunun sé að ræða, en ráðgjafar Jafnréttisstofu eru tilbúnir að hjálpa.

Hafa samband við ráðgjafa

Lög og reglugerðir

Þjónustuaðili

Jafn­rétt­is­stofa

Jafnréttisstofa

Heim­il­is­fang

Borgum v/Norðurslóð
600 Akureyri

Opnun­ar­tími

mánudaga - fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-12